Dagar í Tbílísí

DzhambúlDagana 11.–15. ágúst dvaldist ég í Georgíu, mestallan tímann í höfuðborginni, Tbílísí. Mér varð þá hugsað til annars ferðalangs á þessum slóðum, Halldórs Kiljans Laxness, en hann hélt þar ræðu á rithöfundaþingi 27. desember 1937. Hann varð mjög hrifinn af„Kasakaskáldi“, sem kynnt var fyrir honum á þinginu og hét Dzhambúl. Hann lofaði hinn „tæra skáldskap“ Dzhambúls og sneri kvæðabálki eftir hann, þar sem sagði meðal annars:

Stalín, þú ert söngvari þjóðvísunnar,
Stalín, þú ert hinn voldugi faðir Dzhambúls.
 

Þetta er auðvitað raunhæf lýsing á miðstýrðum áætlunarbúskap, þar sem þeir, sem semja áætlanirnar, ákveða fyrir þjóðina, hvað hún geti og þurfi. Þeir eru „söngvarar þjóðvísunnar“. En Dzhambúl var ekkert annað en trúður, sem lék á dombru, og kvæðin fyrir hann voru sett saman á skrifstofu kommúnistaflokksins, eflaust yfir vænum skammt af vodka. Seinna áttu Guðmundur Böðvarsson og Thor Vilhjálmsson líka eftir að láta blekkjast af þessum samsetningi.

Eitt kvöldið sat Laxness veislu aðalritara kommúnistaflokksins á staðnum, Lavrentíj Bería. Að henni lokinni gengu Laxness og nokkrir aðrir rithöfundar á gistihús sitt skammt frá. Á leiðinni sáu þeir nokkur tötrum klædd flökkubörn sofa á gangstétt. Tilkynnt hafði verið opinberlega nokkrum árum áður, að engin flökkubörn væru lengur í Rússlandi, og hafði Laxness endurtekið það í bók um fyrri för sína í austurveg. Nú sagði einn ferðafélagi hans við leiðsögukonuna: „Það sváfu flökkubörn þarna á götunni.“ Leiðsögukonan svaraði: „Það eru engin flökkubörn lengur til hér í landi.“ Laxness þagði, yppti öxlum, sneri heim til Íslands og hélt áfram að reka áróður fyrir stalínisma.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 20. ágúst 2022.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband