Snorri á Engjum í Snælandi

2.1 Snorri_sturluson_1930Á íslensku heitir Las Vegas engi og Nevada Snæland, þótt lítið sé um engi nálægt Las Vegas og snjór aðeins á hæstu fjallstindum í Nevada. Á hinni árlegu ráðstefnu Samtaka um framtaksfræðslu, Association of Private Enterprise Education, á Engjum í Snælandi kynnti ég hinn 5. apríl nýlega bók mína um tuttugu og fjóra frjálslynda íhaldsmenn, en á netinu er ókeypis aðgangur að henni.

Fyrsti kaflinn er um Snorra Sturluson, enda kom hann orðum að tveimur merkilegum hugmyndum í Heimskringlu: að konungar væru bundnir af sömu lögum og þegnar þeirra og að afhrópa mætti þá, ryfu þeir hinn óskráða sáttmála milli sín og þeirra. Ég benti á, að annar hugsuður þrettándu aldar, heilagur Tómas af Akvínas, komst að sömu niðurstöðu, þótt sá munur væri á, að hann miðaði við náttúrurétt, en Snorri við venjurétt. Í Egils sögu lýsti Snorri síðan fyrsta raunverulega einstaklingnum, Agli Skallagrímssyni, eins og Sigurður Nordal vakti athygli á.

Hinir sígildu hugsuðir frjálshyggjunnar voru John Locke, David Hume og Adam Smith. Locke benti á, að menn gætu myndað einkaeignarrétt án þess að skerða hag annarra, því að miklu meira yrði þá framleitt. Hume taldi réttlætishugtakið vera andsvar við tveimur staðreyndum um mannlegt samlíf, knöppum gæðum og takmörkuðum náungakærleik. Smith leiddi rök að því, að eins gróði þyrfti ekki að vera annars tap og að mannlegt samlíf gæti verið skipulegt án þess að vera skipulagt.

Frjálshyggjan breyttist hins vegar í frjálslynda íhaldsstefnu í andstöðu við frönsku byltinguna 1789, en hún misheppnaðist ólíkt bresku byltingunni 1688 og hinni bandarísku 1776. Ástæðan var, eins og Edmund Burke skrifaði, að byltingarmennirnir frönsku voru ekki að verja og víkka út fengið frelsi, heldur að reyna að endurskapa allt skipulagið, en það endar ætíð með ósköpum. Þeir Benjamin Constant og Alexis de Tocqueville fluttu svipaðan boðskap af miklu andríki.

Á Engjum, í Las Vegas, lét ég þá skoðun loks í ljós, að einn merkasti hugsuður frjálslyndrar íhaldsstefnu væri Friedrich von Hayek, en hann þarf ekki að kynna fyrir Íslendingum.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 9. apríl 2022.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband