Kápa bókar minnar

kjarni_malsins_jpg_1044932.jpgFréttatíminn fékk nokkra hönnuđi til ađ velja bestu og verstu bókarkápur ársins, og var kápa bókar ţeirrar, sem ég tók saman og Bókafélagiđ gefur út fyrir ţessi jól, Kjarni málsins. Fleyg orđ á íslensku, valin ein af tíu bestu kápunum. Björn Jónsson hannađi kápuna, en á framhliđ kápunnar er mynd Ţrándar Ţórarinssonar listmálara, „Útifundur á Austurvelli“ og á hćgri flipa ljósmynd Baldurs Kristjáns ljósmyndara af mér í fornbókabúđ Braga Kristjónssonar á Klapparstíg.

Málverk Ţrándar Ţórarinssonar hefur marga skemmtilega drćtti. Ţetta er útifundur á sama stađ og sumir útifundirnir eftir hrun. En fundargestir eru klćddir í föt frá nítjándu öld og bera yfirbragđ ţeirrar tíđar. Styttan af Jóni Sigurđssyni snýr einnig ađ fundargestunum. Listamađurinn leyfir Alţingishúsinu, Dómkirkjunni, Hótel Borg og Nathan & Olsen-húsinu öllum ađ vera á sínum stađ, en teiknar nýtt hús í stađ gler- og stálvirkis Almennra trygginga, sem honum finnst greinilega ekki prýđa götumyndina.

Yfir ţessari mynd er einhver tímalaus og ţjóđlegur blćr, eins og ćtlunin er, ađ sé yfir bókinni. Hún er í senn nútíminn og fortíđin, skírskotar til sögu og samtíđar. Bókin á einmitt ađ geyma ţađ, sem sagt hefur veriđ sögulegast, fleygast, viturlegast og snjallast á Íslandi. Hún á líka ađ vera handbók fyrir ţá, sem ţurfa ađ taka til máls á fundum eins og sýndir eru í verki Ţrándar eđa skrifa um ţá.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband