15.7.2023 | 08:43
Westminster-höll, júní 2023
Breskur góðkunningi minn, Jamie Borwick, fimmti barón Borwick, var svo elskulegur að bjóða mér í hóf, sem hann hélt 28. júní 2023 í Cholmondeley-salnum í Westminster-höll, breska þinghúsinu, í tilefni þrjú hundruð ára afmælis Adams Smiths. Enginn veit með vissu, hvenær Adam Smith var fæddur, en hann var skírður 5. júní 1723, sem er venjulega talinn fæðingardagur hans. Utanríkisráðherra Breta, James Cleverly, flutti skemmtilega ræðu í hófinu og taldi frelsisboðskap Smiths enn eiga fullt erindi við okkur, en minnti líka á, að við megum ekki láta okkur nægja að njóta frelsisins, heldur verðum við líka að verja það, og nú ógna því tvö stórveldi, grá fyrir járnum og hin skuggalegustu, Rússland og Kína. Hafði ég tækifæri til að skiptast á skoðunum við Cleverly, sem er maður geðugur og gamansamur. Ég er óspar á að láta þá skoðun mína í ljós, að Ísland eigi helst heima með grannríkjunum í Norður-Atlantshafi, Noregi, Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum, og síður í Evrópusambandinu.
Afmælisbarnið sjálft, Adam Smith, setti fram tvær snjallar hugmyndir, sem rifja þarf reglulega upp. Hin fyrri er, að eins gróði þurfi ekki að vera annars tap. Menn og þjóðir geta grætt á hinni alþjóðlegu verkaskiptingu, ef og þegar ólíkir hæfileikar og landkostir fá að nýtast sem best í frjálsum viðskiptum. Seinni hugmyndin er, að hagkerfi geti verið skipulegt án þess að vera skipulagt. Regla getur komist á, þótt enginn einn aðili komi henni á. Smith orðaði það svo, að við frjálsa samkeppni á markaði leiddi ósýnileg hönd menn, sem aðeins ætluðu sér að keppa að eigin hag, að því að vinna að almannahag.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 15. júlí 2023. Myndina af okkur Cleverly utanríkisráðherra tók Hannan lávarður af Highclere.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook