22.10.2022 | 13:07
Fimm daga stríđiđ 2008
Fróđlegt er af mörgum ástćđum ađ koma til Georgíu í Kákasus. Landiđ byggir smáţjóđ međ langa sögu, eigin tungu og stafróf, sjálfstćđa kirkju og mikinn menningararf. Hún hefur ţó veriđ óheppnari međ nágranna en Íslendingar: Rússar í norđri og Tyrkir og Íranir í suđri. Georgía var löngum sjálfstćtt konungsríki, en Rússar lögđu landiđ undir sig áriđ 1800, og var ţess ekki hefnt, fyrr en Georgíumađurinn Josíf Dzhúgashvílí (sem nefndi sig Stalín) gerđist einrćđisherra í Rússlandi, en verri sending var vandfundin. Georgía var sjálfstćtt ríki aftur 19181921 og frá 1991. Rússar sćttu sig viđ ţađ um skeiđ. En ţegar frjálslyndir lýđrćđissinnar, sem vildu tengjast Vesturveldunum, komust til valda áriđ 2004, ókyrrđust ţeir.
Tvö héruđ í Georgíu eru byggđ ţjóđflokkum, sem eiga sér sérstakan uppruna og eigin tungur, Ossetar og Abkasar. Rússar studdu ađskilnađarhreyfingar í ţessum héruđum, en ţegar skćruliđar í Suđur-Ossetíu hófu árásir inn í Georgíu, lét herinn í Georgíu til skarar skríđa gegn ţeim 7. ágúst 2008. Ţá brást rússneski herinn viđ međ ţví ađ ráđast af öllu afli inn í Suđur-Ossetíu og Abkasíu og raunar önnur héruđ landsins líka. Eftir harđa bardaga í fimm daga var 12. ágúst gert vopnahlé ađ undirlagi Nicolasar Sarkozys Frakklandsforseta, og eftir ţađ hvarf rússneski herinn í áföngum frá Georgíu utan Suđur-Ossetíu og Abkasíu. Norđur-Ossetía er rússneskt hérađ. Stríđiđ vakti ekki eins mikla athygli á alţjóđavettvangi og ella, ţví ađ Olympíuleikar voru háđir í Beijing á sama tíma. Rússar hafa síđan viđurkennt sjálfstćđi Suđur-Ossetíu og Abkasíu, en af ţví ađ nćr engin önnur ríki gera ţađ, gefa Rússar út vegabréf fyrir íbúana. Fólk af georgískum uppruna hefur unnvörpum veriđ hrakiđ úr ţessum tveimur héruđum.
Heimurinn lét sér fátt um finnast. Rússar guldu ekki ţessa stríđs á alţjóđavettvangi. Vesturveldin lćrđu ekkert á ţví. En líklega hafa Rússar taliđ sig hafa lćrt margt af ţví.
(Fróđleiksmoli í Morgunblađinu 13. ágúst 2022. Myndin af mér er ađ flytja fyrirlestur í Tbílísí.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Facebook