30.11.2019 | 07:03
Frá Poitiers
Dagana 14.15. nóvember 2019 sat ég ráðstefnu í Poitiers í Frakklandi um Jan Valtin, öðru nafni Richard Krebs. Fáir kannast nú eflaust við þessi nöfn, en sjálfsævisaga Valtins, Úr álögum (Out of the Night), var metsölubók í Bandaríkjunum árið 1941 og olli áköfum deilum, því að þar sagði höfundur frá erindrekstri sínum fyrir alþjóðahreyfingu kommúnista. Fyrri hluti bókar hans kom út á íslensku sama ár. Ég ritstýrði endurprentun bókarinnar árið 2015 og samdi formála og skýringar, og var mér þess vegna boðið að halda erindi á ráðstefnunni.
Krebs fæddist árið 1905, gerðist sjómaður og kommúnisti kornungur og tók þátt í byltingartilraun í Þýskalandi árið 1923. Hann varð síðan flugumaður kommúnista á meðal sjómanna, fór víða og rataði í ýmis ævintýri, en lenti í fangelsi í Bandaríkjunum 1926 fyrir tilraun til manndráps og sat þar í þrjú ár. Síðan tók hann upp þráðinn í sjómannahreyfingu Evrópu, en eftir valdatöku Hitlers 1933 handtóku nasistar hann og pynduðu. Kommúnistar skipuðu honum að gerast gagnnjósnari innan Gestapo, og létu nasistar hann lausan árið 1937. Hélt hann til Danmerkur, en þangað hafði njósna- og undirróðursnet kommúnistahreyfingarinnar í Vestur-Evrópu verið flutt. En þegar honum var skipað að fara til Moskvu í miðjum hreinsunum Stalíns, ákvað hann að forða sér vestur um haf. Þar kynntist hann blaðamanninum Isaac Don Levine, sem sá strax efnivið í góða sögu og aðstoðaði hann við að koma út sjálfsævisögunni. Krebs lést árið 1950, aðeins hálffimmtugur að aldri.
Í erindi mínu sagði ég frá viðtökum bókar Valtins á Íslandi, en íslenskir kommúnistar deildu mjög á höfundinn, og háðu þeir Halldór Kiljan Laxness og Benjamín Eiríksson harða ritdeilu um hann og verk hans (þótt Laxness virtist ekki hafa lesið bókina). Sérstaka athygli vakti sú uppljóstrun Valtins, að skipverjar á skipum Eimskipafélagsins hefðu flutt leyniskjöl milli landa fyrir kommúnistahreyfinguna. Treysti útgefandinn, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, sér ekki til að gefa út seinni hlutann, þótt fyrri hlutinn hefði selst í röskum fjögur þúsund eintökum, og kom hann loks út á vegum Nokkurra félaga árið 1944. Þótt eitthvað sé um ýkjur og ónákvæmni í bókinni, er hún sannkallaður aldarspegill og afar fjörlega skrifuð. Benti ég á, að Þór Whitehead prófessor hefði staðfest ýmsar fullyrðingar Valtins í ritum sínum um kommúnistahreyfinguna, þar á meðal um íslensku sjómennina.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 30. nóvember 2019.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook