3.6.2013 | 19:55
Margrét Thatcher
Margrét Thatcher, forsætisráðherra Breta 19791990, var jarðsungin þriðjudaginn 16. apríl 2013. Hún var hugrökk eins og ljón og kæn eins og refur, en svo lýsir Machiavelli öflugum stjórnmálamanni. Með festu sinni og baráttugleði vakti hún blendnar tilfinningar í hópi starfsbræðra sinna í Evrópu, hinna gráklæddu, virðulegu, miðaldra manna með hálsbindi, sem komu öðru hvoru saman og töluðu í nafni Evrópu. Frú Thatcher! Hún hefur augun úr Caligúlu og varirnar frá Marilyn Monroe, mælti forseti Frakklands, François Mitterand, við ráðherra Evrópumála í stjórn sinni, Roland Dumas.
Thatcher sagði mér hins vegar eitt sinn í kvöldverði: Gallinn við stjórnmálamennina á meginlandinu er, að þeir hafa aldrei skilið hina engilsaxnesku hugmynd um frelsi innan marka laganna. Allt frá því, að Jóhann landlausi neyddist til að skrifa undir Magna Carta 1215, var í Englandi reynt að takmarka vald konungs við það, sem hóflegt gæti talist, og breytti engu, þegar þing kom í stað konungs. Lögin setja jafnt valdsmönnum og einstaklingum skorður.
Napóleon sagði af nokkurri lítilsvirðingu, að Englendingar væru kramaraþjóð. En í heimsstyrjöldinni síðari bjargaði þessi kramaraþjóð öðrum Evrópuþjóðum undan sjálfum sér. Og þótt stjórnmálamennirnir á meginlandinu skildu illa frelsi innan marka laganna, ekki síst atvinnufrelsi, var Jón Sigurðsson sömu skoðunar og Thatcher: Margir hinir vitrustu menn, sem ritað hafa um stjórnaraðferð á Englandi og rannsakað hana nákvæmlega, hafa álitið félagsfrelsið aðalstofn allrar framfarar þar á landi, sagði Jón í Nýjum félagsritum 1844. Með félagsfrelsi átti hann vitaskuld við atvinnufrelsi.
Það var hins vegar Rauða stjarnan, málgagn Rauða hersins rússneska, sem kallaði Thatcher fyrst járnfrúna, og festist það við hana. Það var dæmigert um Thatcher, að hún tók nafnið sjálf upp. Hún sagði í ræðu í kjördæmi sínu, Finchley, 31. janúar 1976: Járnfrú Vesturlanda. Ég? Kaldastríðskona? Já, einmitt ef þeir vilja leggja þann skilning í málsvörn mína fyrir þeim verðmætum og réttindum, sem okkur þykja ómissandi. Það átti síðan fyrir Thatcher að liggja í góðu samstarfi við Ronald Reagan að vinna kalda stríðið.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 13. apríl 2013.)
1.6.2013 | 20:02
Stjórnarmyndanir
Íslenskir stjórnmálaforingjar þurfa að berjast í þremur lotum, fyrst að komast á framboðslista, síðan að afla atkvæða í kosningum og loks að mynda stjórn. Hefur síðasta lotan oft reynst vandasamari en búist hafði verið við og fáir viljað kannast við afkvæmið, þegar það fæddist eftir erfiðar hríðir. Árni Pálsson prófessor sagði til dæmis um þjóðstjórnina, sem mynduð var vorið 1939: Það vilja allir hafa hana, en enginn kannast við hana.
Stundum festast stjórnmálamenn í kreddum um stjórnarmyndanir. Einn leiðtogi Framsóknarflokksins á liðinni öld, Eysteinn Jónsson, andmælti því í nóvemberlok 1946, þegar einhverjir flokksbræður hans máttu ekki til þess hugsa að mynda stjórn með sjálfstæðismönnum: Við erum allir meira og minna haldnir af andúð og samúð með hinum ýmsu flokkkum. En við erum búnir sem miðflokkur, ef við göngum í bindindi um að ræða við aðra flokka.
Fjölmiðlar vaka jafnan eins og gammar yfir stjórnarmyndunum, og sagði Ólafur Jóhannesson, þá formaður Framsóknarflokksins, eftir að hann hafði myndað stjórn sumarið 1971: Ég efast um, að okkur hefði tekist þetta, ef sjónvarpið væri ekki í sumarleyfi. Þá var venjan sú, að Sjónvarpið sendi ekki út í júlímánuði.
Enginn maður myndaði oftar stjórn á tuttugustu öld en Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins 19341961, en hann var fimm sinnum forsætisráðherra. Þegar bandarískur sendimaður fann að því við hann, að hann hefði myndað stjórn með kommúnistum 1944, svaraði hann að bragði: Þeir höfðu svo góð meðmæli. Sendimaður hváði. Ólafur sagði þá: Frá Roosevelt og Churchill! Þá barðist Stalín við hlið þeirra Roosevelts og Churchills.
Stjórnarmyndun gekk erfiðlega í ársbyrjun 1950, og hugðist Sveinn Björnsson forseti skipa utanþingsstjórn. Ólafur Thors talaði þá til hans af miklum þunga: Heldur þú, að það sé hlutverk þitt sem forseta að koma í veg fyrir, að hér á landi sé þingræði og þingræðisstjórn? Tókst Ólafi skömmu síðar að mynda samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þótt hann yrði að vísu sjálfur ekki forsætisráðherra.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 4. maí 2013.)
1.6.2013 | 15:08
Baráttudagar
Komin er út stórfróðleg bók eftir Stefán Gunnar Sveinsson sagnfræðing, Búsáhaldabyltingin: sjálfsprottin eða skipulögð? Kemst höfundur að þeirri niðurstöðu, að búsáhaldabyltingin, eins og óeirðirnar veturinn 20082009 eru oft kallaðar, hafi verið hvort tveggja, sjálfsprottin og skipulögð. Margir hafi mótmælt bankahruninu af eigin hvötum og í fyllsta sakleysi, en ýmsir forystumenn Vinstri grænna aðstoðað óeirðaseggi, sem sátu um Alþingishúsið, meðal annars með því að veita þeim upplýsingar símleiðis innan úr húsinu.
Bókin leiðir hugann að tvennum hörðustu átökum tuttugustu aldar, Gúttóslagnum 9. nóvember 1932 og árásinni á Alþingishúsið 30. mars 1949. (Gúttó hefur nú verið rifið, en það stóð, þar sem nú eru bílastæði þingmanna, milli Alþingishússins og Vonarstrætis.) Líklega er hið sama að segja um þessi átök og búsáhaldabyltinguna: þau voru í senn sjálfsprottin og skipulögð. Munurinn er þó sá, að í Gúttóslagnum 1932 tapaði lögreglan fyrir kommúnistum, en henni tókst 1949 að hrinda árásinni á Alþingishúsið með aðstoð sjálfboðaliða, hvítliðanna svokölluðu. Eftir Gúttóslaginn lágu flestir lögregluþjónar bæjarins óvígir, eins og formaður kommúnistaflokksins, Brynjólfur Bjarnason, skrifaði sigri hlakkandi í skýrslu til Moskvu. Mörgum var minnis stætt, þegar Hermann Jónasson, þá lögreglustjóri í Reykjavík, kallaði til kommúnista inni í Gúttó, eftir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru sloppnir úr húsinu: Ykkar augnablik er liðið!
Ein frægustu ummælin í götubardaganum 1949 átti þingmaður Sósíalistaflokksins, Katrín Thoroddsen læknir, þegar hún sá hvítliða þramma úr þingflokksherbergi Framsóknarflokksins út á Austurvöll: Þetta er í fyrsta skipti, sem ég sé myndarlega menn koma út úr þessu herbergi.
Frá sögulegu sjónarmiði séð stendur búsáhaldabyltingin á milli Gúttóslagsins og árásarinnar á Alþingishúsið. Þar tapaði lögreglan ekki eins og 1932, en sigur hennar var miklu naumari en 1949, og mátti engu muna, enda hrökklaðist frá ríkisstjórn, og datt þá allt í dúnalogn. En líklega verða fleygustu ummæli búsáhaldabyltingarinnar talin frá Álfheiði Ingadóttur, þá alþingismanni, er hún æpti að lögreglumanni, sem varði ráðherra fyrir ofbeldisseggjum: Já, farðu bara, lífvarðatitturinn þinn, sem eltir ráðherraræfil alla daga!
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 30. mars 2013.)
31.5.2013 | 15:14
Sögur úr kosningum
Margt getur skemmtilegt gerst í kosningabaráttu. Magnús Óskarsson, sem lengi var borgarlögmaður, sagði sögu af ónefndum frambjóðanda, sem reytti af sér brandara á kjósendafundi. Einn fundargesturinn var andstæðingur hans og kallaði fram í: Það nægir ekki að segja hér brandara. Það geta allir gert! Ræðumaður svaraði að bragði: Segðu þá einn! Þá varð fundargesturinn orðlaus. Sagan mun komin frá Danmörku, og ræðumaðurinn var Klaus Berntsen úr Vinstri flokknum.
Sigurður Grímsson var ungur lögfræðingur, sem fá átti í framboð fyrir Alþýðuflokkinn 1923. Hann fór til gamalreynds áróðursmanns flokksins, Ólafs Friðrikssonar, kvaðst vera óvanur ræðuhöldum og spurði, hvernig hann skyldi bregðast við frammíköllum á fundum. Ólafur svaraði: Blessaður vertu, það er enginn vandi. Þú hefur það bara eins og ég einu sinni á fundi. Það byrjaði einhver að kalla fram í. Ég hvessti þá á manninn augun og hrópaði á móti: Þú varst ekki svona borubrattur forðum, þegar þú grést úti í Viðey! Maðurinn snarþagnaði og varð jafnvel skömmustulegur á svipinn. Ég er viss um, að hann hefur aldrei komið út í Viðey.
Einn flokksbróðir þeirra Sigurðar Grímssonar og Ólafs Friðrikssonar, rithöfundurinn Guðmundur G. Hagalín, kunni líka ísmeygilegar áróðursbrellur. Lengi fram eftir 20. öld skiptist Alþingi í efri og neðri deild, og réð tilviljun, í hvora þeirra þingmenn settust. En Hagalín gerði sér fyrir kosningarnar 1933 ferð til aldraðra hjóna á Ísafirði, sem ætíð höfðu kosið sjálfstæðismanninn Jón Auðun Jónsson (föður Auðar Auðuns). Eftir að Hagalín hafði lokið úr kaffibollanum, leit hann á hjónin og sagði alvörugefinn: Það er ljótt með hann Jón ykkar Auðun. Hann er búinn að vera tíu ár á þingi fyrir ykkar tilstilli og er enn ekki kominn upp í efri deild! Þetta fannst hjónunum lök frammistaða og kusu þann frambjóðanda, sem Hagalín mælti með.
Ári síðar voru aftur kosningar á Íslandi. Þá flutti kommúnistaleiðtoginn Brynjólfur Bjarnason innblásna ræðu á kjósendafundi á Ísafirði um, hvernig hér yrði fyrirmyndarríki og gósenland eftir valdatöku kommúnista. Þegar Brynjólfur lauk ræðu sinni, gall við í Hagalín: Hallelúja! Allur salurinn hló. Fundargestir sögðu Hagalín, að þetta hefði verið stysta og skýrasta kosningaræða, sem þeir hefðu heyrt.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 27. apríl 2013, á kjördag.)
30.5.2013 | 08:54
Erfitt verkefni nýrrar stjórnar
Erfiðasta verkefni hinnar nýju stjórnar verður að ná tökum á ríkisfjármálum, sem hafa farið gersamlega úrskeiðis síðustu fjögur árin. Vinstri stjórnin sparaði hvergi, svo að heitið gæti, heldur frestaði aðeins framkvæmdum, vanrækti nauðsynlegt viðhald eigna og ýtti þannig vandanum á undan sér. Uppsafnaður halli ríkissjóðs er stórkostlegur, eins og dr. Birgir Þór Runólfsson bendir á.
Jafnframt eyddi vinstri stjórnin milljörðum í gæluverkefni eins og stjórnlagaþingið og aðlögunarferlið til undirbúnings aðild að Evrópusambandinu.
Seðlabankinn segir nú, að Íslendingar eigi ekki nægan gjaldeyri til að greiða af skuldum næstu misserin, þótt hann hefði sagt á sínum tíma, að við réðum við báða Icesave-samningana! Það er alvarlegt áhyggjuefni.
Eina færa leiðin út úr vandanum er hagvöxtur. En hann er nú lítill sem enginn. Eistlendingar urðu fyrir miklu áfalli í hinni alþjóðlegu fjármálakreppu, gengu miklu harðar fram í raunverulegum aðhaldsaðgerðum í ríkisrekstri, og nú er vöxtur að færast þar í atvinnulífið.
Minnka þarf ríkið og örva vöxt atvinnulífsins.
29.5.2013 | 14:58
Með eiturörvar í hjartastað
Skömmu eftir að Jón Trausti féll úr spánsku veikinni haustið 1918, lét Jón Stefánsson, bóndi að Hreiðarsstöðum í Fellahreppi í Norður-Múlasýslu, svo um mælt við Guðmund G. Hagalín: Það er þjóðinni til ævarandi skammar, að þjóðskáldið Jón Trausti skyldi deyja með eiturörvar í hjartastað. Jón Trausti hafði oft sætt árásum drýldinna skólamanna, enda sjálfmenntaður og vandaði ekki alltaf stíl sinn sem skyldi, þótt hann bæri af um sköpunarmátt og frásagnargleði.
Halldór Kiljan Laxness þáði margar hugmyndir af Jóni Trausta. Til dæmis er sagan um reiðferð Bjarts á Sumarhúsum í Sjálfstæðu fólki sótt beint í smásögu eftir Jón Trausta í Eimreiðinni 1906. Sjálf hugmynd Kiljans um að semja skáldsögu um líf fólks á heiðinni er líklega upphaflega komin frá Jóni Trausta, þótt Kiljan útfæri hana allt öðru vísi.
Þórbergur Þórðarson þáði líka hugmyndir af Jóni Trausta. Hann sagði til dæmis 1925 í deilu við Árna Sigurðsson fríkirkjuprest: Kristur endaði ævi sína á krossi. Þér endið ævi yðar með krossi. Þessi snjalla líking er komin beint úr smásögu í Eimreiðinni 1915 eftir Jón Trausta, þegar prestur einn mótmælir prófastinum og minnir í því sambandi á Krist: Hann bar sinn kross ekki á brjóstinu, eins og prófasturinn þarna, heldur á blóðugu bakinu.
Jón Trausti, sem hét réttu nafni Guðmundur Magnússon, var eindreginn andstæðingur jafnaðarmanna. Í skáldsögunni Bessa gamla frá 1918 kvað hann kjörorð jafnaðarmanna vera: Upp með dalina! Niður með fjöllin! Í smásögunni Kappsiglingunni, sem kom á prent 1909, sagði hann: Þeir sigra ekki alltaf miklu mennirnir, oddborgararnir, ekki alltaf. Einokunaröldin er um garð gengin. Nú er öld samkeppninnar og hins frjálsa mannjafnaðar.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 6. apríl 2013.)
28.5.2013 | 12:57
Myndband af mér í Brasilíu
Hin síðari misseri hef ég jafnan dvalist nokkra mánuði á ári í Rio de Janeiro í Brasilíu, þar sem ég er í rannsóknarsamstarfi við nokkrar stofnanir, meðal annars um grænan kapítalisma og um hagþróun í BRIK-löndunum. Mér var boðið að flytja fyrirlestur í Porto Alegre 9. apríl síðast liðinn á frelsisráðstefnu, sem var að þessu sinni helguð hugmyndum franska rithöfundarins Frederics Bastiats (sem hafði mikil áhrif á séra Arnljót Ólafsson, höfund fyrsta hagfræðiritsins á íslensku, Auðfræði, eins og sér víða stað í þeirri bók). Ég talaði á ensku, en hóf fyrirlesturinn og lauk honum á portúgölsku. Hér er myndband af framlagi mínu:
27.5.2013 | 12:57
Ógleymanleg heimsókn
Ég sótti ráðstefnu í Varsjá dagana 14.15. maí 2013 um það, hvernig best væri að minnast fórnarlamba alræðisstefnu tuttugustu aldar, kommúnista og nasista. Þar töluðu meðal annarra forstöðumenn safna í mörgum kommúnistaríkjanna. Einn dagskrárliðurinn var heimsókn í safnið um uppreisnina í Varsjá 1944. Sú heimsókn var ógleymanleg.
Ég hafði kynnt mér uppreisnina í Varsjá fyrir mörgum árum, því að svo vildi til, að einn kennarinn minn í Oxford, Zbigniew Pelczynski, hafði átján ára barist með öðrum uppreisnarmönnum, verið tekinn höndum, en Bretar frelsuðu hann úr fangabúðum þýska hersins, og gekk hann menntaveginn og lauk doktorsprófi í heimspeki með kenningar Hegels sem sérgrein.
Uppreisnin í Varsjá 1944 er einn hörmulegasti viðburður heimsstyrjaldarinnar síðari. Frá því í ágúst 1939 og fram í júní 1941 voru Hitler og Stalín bandamenn og skiptu á milli sín Mið- og Austur-Evrópu. Vesturhluti Póllands lenti undir stjórn Hitlers, en Stalín hrifsaði til sín austurhlutann, eftir að nasistar höfðu lagt pólska herinn að velli fyrstu vikurnar í september 1939. Reyndu þeir Hitler og Stalín báðir að ganga milli bols og höfuðs á því, sem kalla mætti pólsku valdastéttinni, liðsforingjum, lögregluforingjum, háskólaprófessorum, bæjarstjórum, rithöfundum.
Pólverjar voru þó ekki á því að gefast upp. Útlagastjórn þeirra sat í Lundúnum, og fjölmenn andspyrnuhreyfing var undir vopnum í landinu sjálfu. Þegar hinn Rauði her Stalíns, sem nú var ekki lengur bandamaður Hitlers, heldur barðist með Bretum og Bandaríkjamönnum, nálgaðist Varsjá úr austri síðsumars 1944, ákvað andspyrnuhreyfingin að taka borgina úr höndum Þjóðverja. Uppreisnin hófst 1. ágúst 1944. En hið óvænta gerðist, að þýski herinn barðist af fullri hörku, þótt allir vissu, að Hitler væri að tapa stríðinu.
Annað óvænt gerðist. Stalín lét Rauða herinn nema staðar á austurbakka Vistula-fljóts, sem rennur í gegnum Varsjá, en miðborgin er á vesturbakkanum. Þaðan horfðu hermenn hans í sjónaukum sínum á þýska herinn murka lífið úr illa vopnuðum andspyrnumönnum, en myrða líka konur og börn, því að Hitler gaf út þau fyrirmæli, að öllum Varsjárbúum skyldi útrýmt og borg þeirra jöfnuð við jörðu. Stalín leyfði ekki einu sinni flugvélum Breta og Bandaríkjamanna með vistir og lyf til uppreisnarmanna að fljúga um yfirráðasvæði hans, svo að þær urðu að fara frá bækistöðvum á Ítalíu.
Lífið er veðmál: Pólsku uppreisnarmennirnir vissu, að þeir áttu við ofurefli að etja. En þeir höfðu gert ráð fyrir því, að þýski herinn myndi veita minna viðnám og að Bandamenn kæmu þeim til aðstoðar.
SS-sveitir Hitlers börðust af mestri hörku, enda töldu þær eflaust, að þær hefðu litlu að tapa. Fóru SS-menn með eldi hús úr húsi og skutu allt kvikt, sem þeir sáu. Þeir fáu íbúar, sem eftir voru, urðu að leita sér skjóls í holræsum borgarinnar. Tugþúsundir pólskra andspyrnumanna féllu, en miklu fleiri óbreyttir borgarar létu lífið í uppreisninni. Í janúar 1945, þegar þýski herinn hörfaði loks frá Varsjá, var hún rústir einar og aðeins örfáar hræður eftir á lífi. Safnið lét gera myndband eftir ljósmyndum og kvikmyndum, sem sýnir, hvernig þá var umhorfs:
Áður hafði Varsjá verið í röð reisulegustu borga Evrópu og stundum kölluð París Norðursins, eins og sést á þessari stuttu mynd.
Eftir stríð lét Stalín fangelsa og jafnvel taka af lífi marga andspyrnumenn. sem hættu höfðu lífi sínu í uppreisninni í Varsjá. Hann kærði sig ekki um neina samkeppni um forræði eða forystu í Póllandi.
Örlög Varsjár er eitt skýrasta dæmi 20. aldar um það, hversu nálægt kommúnistar og nasistar stóðu hvorir öðrum í sögulegum skilningi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook
27.5.2013 | 02:03
Fjárhæli og andabú
Heimspekidoktorarnir Vilhjálmur Árnason og Salvör Nordal skrifuðu lærðar ritgerðir í rannsóknarskýrslu Alþingis um siðferði eða öllu heldur siðleysi íslenskra fjármálamanna fyrir bankahrunið 2008. Ein hneykslunarhella þeirra var hugmyndin um Ísland sem fjármálamiðstöð. En sú hugmynd er ættuð af þeirra slóðum, úr heimspekiskor Háskóla Íslands. Mikael M. Karlsson heimspekiprófessor birti grein í Vísbendingu 23. desember 1987, þar sem hann kvað Ísland af mörgum ástæðum henta sem fjárhæli, eins og hann kallaði það, skráningarstað fyrirtækja og geymslu fjármagns. Til dæmis væri landið friðsælt, stöðugleiki í stjórnarfari, orðspor þjóðarinnar gott og málakunnátta almenn. Nefndi Mikael í því sambandi meðal annars Sviss, Liechtenstein og Mön, sem náð hefðu miklum árangri í fjármálaþjónustu. DV fagnaði hugmynd Mikaels í stórri frétt 30. desember sama ár, og fylgdi Mikael henni eftir með nokkrum greinum í Vísbendingu ári síðar. Þegar ég tók þessa hugmynd upp í bók minni 2001, Hvernig getur Ísland orðið ríkasta land í heimi? vitnaði ég með velþóknun í skrif Mikaels.
Hugmynd okkar Mikaels Karlssonar var hins vegar mjög frábrugðin veruleikanum á Íslandi um og eftir 2004, þegar enginn var til að veita auðjöfrunum hæfilegt aðhald. Hugmynd okkar var að laða fyrirtæki og fjármagn að landinu með lágum sköttum og föstum reglum. En veruleikinn frá 2004 til 2008 var, að fámenn auðklíka öðlaðist í krafti yfirráða yfir verslunarkeðjum og fjölmiðlum ótakmarkaðan aðgang að bönkunum, sem hún notaði síðan til að tæma þá í því skyni að fara í útrás erlendis. Skuldirnar dreifðust á ýmsar kennitölur, en skuldunauturinn var jafnan hinn sami. Þetta var í rauninni svipuð saga og sögð var um Benjamín Eiríksson bankastjóra og Ólaf á Oddhóli Jónsson. Benjamín hafði lánað Ólafi fyrir andabúi og vildi eitt sinn skoða framkvæmdirnar. Endur Ólafs voru eitthvað færri en hann hafði gefið upp í áætlunum og skýrslum, og brá hann á það ráð að láta þær trítla nokkra hringi í kringum hús búsins, svo að þær virtust miklu fleiri en raun var á. Þetta var auðvitað alþjóðleg flökkusaga frekar en bókstaflegur sannleikur um þá Benjamín og bóndann á Oddhóli. En gamanið breyttist hér í ramma alvöru: Ísland varð ekki það fjárhæli, sem við Mikael sáum fyrir okkur forðum, heldur risastórt andabú, þar sem sömu endurnar voru sýndar og veðsettar margsinnis.
26.5.2013 | 22:27
Pétur Pétursson
Orðið Pétur merkir sem kunnugt er Steinn, Petros á grísku, og hefur löngum verið vinsælt mannanafn.
Þrír nafnkunnir menn í Reykjavík hétu upp úr miðri 20. öld Pétur Pétursson. Þeir voru útvarpsþulurinn með sína þrumuraust, síðan kaupmaður, sem jafnan var kallaður Pétur í Glerinu, en þriðji maðurinn var um skeið forstjóri í Álafossi. Haukur pressari, kynlegur kvistur í höfuðstaðnum, sagði eitt sinn við Pétur þul: Ertu ekki alltaf að fá bréf, sem Pétur í Glerinu á að fá, og líka bréf, sem Pétur í Álafossi á að fá, og þeir að fá bréf, sem þú átt að fá? Pétur þulur svaraði: Jú, en það er gott á milli okkar, og hver fær sitt. Þá sagði Haukur: Þið eruð orðnir of margir. Ég segi það satt. Ég er orðinn þreyttur á þessu.
Pétur í Glerinu varð á einni svipstundu frægur í Reykjavík, þegar vinur hans, Ewald (Lilli) Berndsen tók hann með á leiksýningu. Hafði Lilli sagt honum, að auk leikara og leikstjóra væri höfundur leikrits oft kallaður fram í sýningarlok og hylltur með lófataki. Þeir félagar horfðu á uppfærslu af Skugga-Sveini eftir Matthías Jochumsson. Pétur hreifst af verkinu, og á meðan lófatakið dundi við, eftir að tjaldið féll, spratt hann á fætur og kallaði hátt og snjallt: Fram með höfundinn!
Pétur þulur, sem látinn er fyrir nokkru, var orðheppinn maður og sjófróður. Kynntist ég honum ágætlega. Eitt sinn sagði hann í morgunútvarpinu: Skyggnið á Sauðárkróki var svo lítið í morgun, að menn sáu bara sína nánustu.
Löngu fyrir daga þessara þriggja alnafna var uppi bóndi, Pétur Pétursson í Holárkoti í Svarfaðardal. Hann var fátækur, en barnmargur. Þótti grönnum hans nóg um, enda hvíldi framfærsluskylda á þeim, ef bú Péturs leystist upp. Eitt sinn gerði sóknarpresturinn sér ferð til hans og spurði: Hvenær heldur þú, að þú hættir að eiga börnin, Pétur minn? Pétur svaraði: Ojæja, ojæja, hvenær haldið þér, að Guð hætti að skapa?
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 16. mars 2013.)