31.7.2021 | 11:50
Tvær þrálátar goðsagnir
Sumar goðsagnir virðast eiga sér mörg líf. Drengsmálið svokallaða 1921 snerist um það, að Ólafur Friðriksson, leiðtogi vinstri arms Alþýðuflokksins, hafði tekið með sér frá Rússlandi ungling, sem talaði rússnesku og þýsku, en Ólafur ætlaði honum að aðstoða sig við samskipti við hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu. Þegar unglingurinn reyndist vera með smitandi augnveiki, sem valdið getur varanlegri blindu, var hann að læknisráði, en eftir nokkur átök, sendur úr landi. Pilturinn hét Nathan Friedmann og hafði misst föður sinn í rússneska borgarastríðinu. Pétur Gunnarsson segir í bókinni Í fátæktarlandi árið 2007 (bls. 128): Nathan, sem var gyðingur og hafði sest að í Frakklandi, hvarf sporlaust við innrás Þjóðverja í upphafi heimsstyrjaldarinnar síðari og hefur nær örugglega liðið upp um skorsteininn í einhverjum úttrýmingarbúðum nasista. En Pétur Pétursson (þulur og alþýðufræðimaður) hafði upplýst 21 ári áður í bók um Drengsmálið, að Nathan hafði látist á sóttarsæng 1938.
Í sjálfsævisögu Árna Bergmanns, Eitt á ég samt, er önnur goðsögn endurtekin í kafla um Halldór Laxness (bls. 248). Seinna voru dregin fram gögn úr skjalasöfnum vestra sem sýna að bæði amrískir diplómatar og íslenskir stjórnmálaforingjar leituðu allra ráða í köldu stríði til að spilla orðstír og útgáfumöguleikum þess skaðræðismanns sem þeir töldu Halldór vera. Engin slík skjöl eru til. Einu skjölin eru um það, eins og ég skýrði frá í bók minni um íslensku kommúnistahreyfinguna fjórum árum áður en Árni gaf út rit sitt, að Halldór hafði ekki talið fram á Íslandi tekjur sínar í Bandaríkjunum, og lauk því máli svo, að skáldið samþykkti að greiða nokkra upphæð í ríkissjóð, en hlaut einnig dóm fyrir brot á gjaldeyrisskilareglum. Í skýrslu taldi bandarískur stjórnarerindreki líklegt, að þetta gæti orðið Halldóri til álitshnekkis á Íslandi, en svo reyndist ekki verða. Nú nýlega hefur Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson birt skjöl frá bandaríska útgefandanum, Alfred Knopf, sem sýna, að ákvörðunin um að hætta útgáfu verka Halldórs réðst af mati bókmenntaráðunauta hans, ekki stjórnmálaástæðum.
Hægri menn á Íslandi bera hvorki ábyrgð á dauða Nathans Friedmanns né gengisleysi Halldórs Laxness í Bandaríkjunum.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 24. júlí 2021.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:51 | Facebook