27.12.2024 | 09:10
Öllu má nafn gefa
Fyrsta stjórnin íslenska, sem gaf sjálfri sér nafn, var stjórn hinna vinnandi stétta, sem mynduð var 1934, en þrátt fyrir nafnið hafði hún að baki sér minni hluta kjósenda, 43,6%. Líklega hefði hún frekar átt að heita stjórn hinna talandi stétta. Önnur stjórn, sem hlaut sérstakt nafn, var þjóðstjórnin, sem mynduð var 1939. Hún var almennt talin ill nauðsyn, enda sagði Árni Pálsson prófessor: Það vilja allir hafa hana, en enginn kannast við hana. Þá var ráðherrum fjölgað úr þremur í fimm, og Jón Helgason prófessor orti:
Eitt er þó nálega álíka veglegt hjá báðum,
því örlögin veittu oss í smæð vorri dýrmætan frama:
Ráðherratalan á Íslandi og Englandi er bráðum
orðin hin sama.
Sósíalistaflokkurinn var þó utan stjórnar, svo að hún var ekki raunveruleg þjóðstjórn. En vegna náinna tengsla Sósíalista við Kremlarbændur treystu aðrir þeim ekki. Þetta breyttist í stríðinu, þegar Rússar börðust við hlið Breta og Bandaríkjamanna. Árið 1944 myndaði Ólafur Thors nýsköpunarstjórnina með Sósíalistum. Þegar bandarískur sendimaður spurði, hvers vegna hann hefði myndað stjórn með kommúnistum, svaraði hann: Þeir fengu svo góð meðmæli, frá Roosevelt og Churchill. Ef þeir gátu starfað með Stalín, þá gat hann það. Nýsköpunarstjórnin eyddi öllum stríðsgróðanum á þremur árum, stundum í þörf verkefni. Næsta stjórn, sem bar sérstakt nafn, var viðreisnarstjórnin, sem sat frá 1959 til 1971, beitti sér fyrir afnámi innflutningshaftanna og þótti farsæl.
Jafnframt voru stjórnir, sem Sjálfstæðisflokkurinn átti ekki aðild að, venjulega kallaðar vinstri stjórnir: Hermann Jónasson myndaði eina 1956, Ólafur Jóhannesson aðra 1971 og þá þriðju 1978. Steingrímur Hermannsson myndaði eina vinstri stjórn 1988 og Jóhanna Sigurðardóttir aðra 2009. Í stjórn Jóhönnu höfðu allir aðrir ráðherrar en hún sjálf starfað um eitthvert skeið í gamla Alþýðubandalaginu, arftaka Sósíalistaflokksins. Sú stjórn beið mesta kosningaósigur íslenskrar stjórnmálasögu árið 2013. En verður væntanleg stjórn þeirra Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland vinstri stjórn? Og það í miðri hægri bylgju hér og í heiminum öllum? Verður hún stjórn eyðenda eða greiðenda?
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 21. desember 2024.)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:17 | Slóð | Facebook
27.12.2024 | 09:07
Stjórnarmyndun
Nú vinna leiðtogar þeirra þriggja flokka, sem juku mest fylgi sitt í þingkosningunum 30. nóvember 2024, að stjórnarmyndun, þær Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland. Samsteypustjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins undir forsæti Kristrúnar er vissulega annar af tveimur rökréttum möguleikum eftir kosningarnar. Hinn er samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks undir forsæti Bjarna Benediktssonar. Í rauninni ræður Viðreisn því, hvor möguleikinn verður að veruleika, en hún virðist afhuga samstarfi við Sjálfstæðisflokk og Miðflokk, þótt skammt sé milli flokkanna þriggja í efnahagsmálum.
Á Íslandi hafa stjórnarmyndanir þó iðulega verið eins og langdregin leikrit, sem stjórnmálaflokkar setja á svið til þess að þurfa ekki að efna gáleysisleg loforð. Stundum hafa þær tekið óvænta stefnu, þegar hefur komið að vali forsætisráðherra. Til dæmis gátu þeir Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, og Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, hvorugur unnt hinum þess að skipa öndvegi árið 1947, og varð því leiðtogi minnsta flokksins, Alþýðuflokksmaðurinn Stefán Jóhann Stefánsson, forsætisráðherra. Svipað gerðist árið 1978, þegar sigurvegarar kosninganna það ár, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur, gátu hvorugur sætt sig við stjórnarforystu hins, svo að Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, myndaði stjórn með þeim, þótt flokkur hans hefði goldið afhroð.
Nú er hins vegar ljóst, að valið er milli Kristrúnar og Bjarna og langlíklegast, að Kristrún myndi stjórn. En um hvað?
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 14. desember 2024.)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook
27.12.2024 | 09:05
Tímamót í stjórnmálasögunni?
Lífið er, eins og Milan Kundera sagði, ganga inn í þoku, þar sem við sjáum allt skýrt, þegar við horfum um öxl, en óglöggt hitt, sem framundan er. En hugsanlega marka þingkosningarnar 30. nóvember 2024 tímamót í stjórnmálasögunni. Nú er aðeins einn yfirlýstur vinstri flokkur eftir á þingi með 21 af hundraði atkvæða, Samfylkingin, en undir nýrri forystu hefur hann hallast talsvert til hægri. Allt frá því í þingkosningunum 1931 hafa fjórir flokkar keppt um atkvæði kjósenda, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag (og forverar þess, kommúnistaflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn).
Það er álitamál, hvort þessum fjórum flokkum fækkaði í þrjá árið 1999, þegar Samfylkingin var stofnuð með samruna Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og tveggja smáflokka, eða hvort það gerðist núna, þegar Vinstri grænir duttu af þingi. Var hinn rétti arftaki Alþýðubandalagsins Samfylkingin, eða var hann Vinstri grænir? Þótt Samfylkingin hefði erft digra sjóði Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, minntu Vinstri grænir óneitanlega meira á hið gamla Alþýðubandalag en Samfylkingin. Andspænis Samfylkingunni standa nú fimm flokkar, sem allir eru mið- eða mið-hægri flokkar.
Þegar litið er til skamms tíma, var ríkisstjórninni 20212024 afdráttarlaust hafnað. Vinstri grænir hurfu nánast, og Framsóknarflokkurinn missti meira en helming síns fylgis. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði um fimmtungi síns fylgis, og fór þó betur en á horfðist. En furðulegt var að heyra Þorstein Pálsson og fleiri spekinga halda því fram í kosningasjónvarpi Stöðvar tvö, að nú væri Sjálfstæðisflokkurinn í fyrsta sinn ekki stærsti flokkurinn. Þeir muna ekki, að hið sama gerðist í þingkosningunum 2009. Stjórnmálasagan sýnir okkur síðan, að flokkar, sem stofnaðir eru utan um menn frekar en málefni, endast illa, og gætu það orðið örlög Miðflokksins og Flokks fólksins, eins og varð um Samtök frjálslyndra og vinstri manna, Bandalag jafnaðarmanna, Borgaraflokkinn og Þjóðvaka. Hver veit, hvað býr í þokunni?
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 7. desember 2024.)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook
27.12.2024 | 09:02
Hugleiðingar á kjördag
Mér varð í kosningabaráttunni hugsað til orða Sigurðar Nordals í Íslenskri menningu árið 1942. Háski sá, sem vofir yfir lýðræði nútímans og hefur víða gert það svo valt, er framar öllu fólginn í fláttskapnum, þegar almenningi er talin trú um, að hann sé kúgaður samkvæmt umboði frá honum sjálfum, eða hann er fyrst féflettur og síðan látinn þiggja sína eigin eign í mútur og náðargjafir, skrifaði Sigurður. Allmargt má ganga á tréfótum um afkomu manna til þess að sá kostur sé betri að svipta þá dug og forsjá til frjálsrar sjálfbjargar og sambjargar.
Það var ekki út í bláinn, þegar bandaríski blaðamaðurinn H. L. Mencken kvað kosningar vera uppboð á fyrirframstolnum munum. Frægur varð einn frambjóðandi Alþýðuflokksins, þegar hann var á framboði í Dalasýslu árið 1949. Fór hann á milli bæja með aðstoðarmanni sínum og spurði bændur, hvort þá vanhagaði ekki um eitthvað. Einhver þeirra dró seiminn og sagði, að flugvöll vantaði að vísu í sýsluna. Frambjóðandinn sneri sér að aðstoðarmanninum og sagði: Skrifaðu flugvöll.
Sigurður Nordal vék aftur að lýðræðinu í útvarpserindi 1957. Ef fólki er innrætt, að ríkið eigi að leysa og geti leyst öll þess vandamál, fer það að lokum að kenna ríkinu um öll sín mein. Hvort tveggja er vitanlega jafnfjarstætt. Það verður bæði að grafa dýpra, skyggnast víðar um og seilast hærra en ríkisvaldið getur nokkurn tíma náð til þess að finna brýnustu þarfirnar, mestu verðmætin, alls konar mannlegt böl og bölvabætur.
Í kosningabaráttu vilja oft gleymast takmarkanir lýðræðisins. Það er ekki allra meina bót, heldur friðsamleg aðferð til að skipta um valdhafa, sé þess talin þörf. Hitt er annað mál, að stundum verður í kosningum að velja skárri kost af tveimur. Haldið fyrir nefið og kjósið Kristilega lýðræðisflokkinn, sagði ítalski blaðamaðurinn Indro Montanelli árið 1976, þegar hætta var á, að kommúnistaflokkurinn kæmist í stjórn.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 30. nóvember 2024.)
27.12.2024 | 08:59
Osló, nóvember 2024
Fimmtudagskvöldið 14. nóvember 2024 var ég staddur í Osló og notaði tækifærið til að rabba við nokkra íhaldsstúdenta um nýútkomna bók mína, Conservative Liberalism, North and South: Grundtvig, Einaudi and their Relevance Today. Ég benti á, að frjálshyggja ætti sér djúpar rætur í venjurétti og þinghaldi norrænna þjóða, eins og Snorri Sturluson skrifaði um í Heimskringlu, en líka í náttúrurétti heilags Tómasar af Akvínas, en hann var sammála Snorra um, að konungar væru bundnir af lögum og að afhrópa mætti þá, sem brytu þau. Upp úr þessum hugmyndum spryttu réttarríkið, að lögin réðu frekar en mennirnir, og lýðræðið, að almenningur gæti skipt um valdhafa á nokkurra ára fresti, ef hann vildi.
Í rabbinu bar ég saman þjóðernis-frjálshyggju danska skáldsins Grundtvigs og alþjóða-frjálshyggju ítalska hagfræðingsins Einaudis. Ég sagði frá því, sem ég kalla norrænu leiðina í alþjóðamálum: friðsamlegur aðskilnaður þjóða, sjálfstjórn þjóðarbrota, landamærabreytingar samkvæmt atkvæðagreiðslum, málskot til alþjóðadómstóla um deilumál ríkja og sjálfsprottið samstarf þeirra með lágmarksafsali fullveldis.
Enn fremur benti ég á mögulegar umbætur í Evrópusambandinu: að breyta framkvæmdastjórninni í venjulega stjórnsýslustofnun og færa lagasetningarvald hennar til Evrópuþingsins, að skipta Evrópuþinginu í efri deild ríkja og neðri deild kjósenda, að hætta að velja aðeins inn miðstýringarsinna í Evrópudómstólinn, að stofna sérstakan dómstól um nálægðarregluna (subsidiarity principle), sem úrskurðaði um valdmörk þjóðríkja og Evrópusambandsins, og að herða reglur um evrópska seðlabankann.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 23. nóvember 2024.)
27.12.2024 | 08:58
Upphaf kvótakerfisins
Almenna bókafélagið gaf 7. nóvember 2024 út bókina Fish, Wealth, and Welfare: Selected Scientific Papers, Fiskur, fé og farsæld: Valdar vísindaritgerðir, eftir dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus í fiskihagfræði í Háskóla Íslands. Af því tilefni var haldin alþjóðleg ráðstefna í Hátíðarsal Háskóla Íslands með þremur kunnum fiskihagfræðingum frá útlöndum 8. nóvember. Var hún vel sótt og fyrirlestrarnir hinir fróðlegustu. Einn gestur var íslenskur að ætt, en hefur starfað í Noregi alla sína tíð, Rögnvaldur Hannesson.
Fiskihagfræðin kennir okkur, að fiskistofnar séu takmörkuð gæði, sem takmarka verði aðganginn að. Ragnar rifjaði upp, að á háskólaárunum vann hann á Þjóðhagsstofnun á sumrin, þar sem honum var falið að kynna sér nýjustu rannsóknir í fiskihagfræði, þar á meðal doktorsritgerð Rögnvalds Hannessonar frá 1975, sem var brautryðjendaverk. Þetta sama ár var settur leyfilegur hámarksafli í síld, og fengu allir síldarbátarnir sömu aflahlutdeild. Bráðlega fóru að heyrast raddir um, að hagkvæmt gæti verið að leyfa framsal aflaheimilda milli báta. Á þetta máttu embættismenn ekki heyra minnst og vildu banna allt framsal.
Ragnar spurði hins vegar: Hvers vegna ekki að leyfa það? Hann fékk Jakob Jakobsson fiskifræðing í lið með sér, og framsalið var leyft. Það olli hagræðingu í greininni. Þetta var vísir að því kerfi framseljanlegra og varanlegra aflaheimilda, sem til varð í sjávarútvegi og hefur reynst í senn arðbært og sjálfbært. Framsalið tryggir, að þeir útgerðarmenn, sem reka báta sína með mestum hagnaði, halda áfram veiðum, en hinir flytjast í önnur störf, sem henta þeim betur.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 16. nóvember 2024.)
27.12.2024 | 08:56
Er Trump fasisti? Nei!
Orðið fasismi er nú lítið annað en skammaryrði. Það er þó ómaksins vert að leita sögulegrar merkingar þess. Fasismi einkennist að sögn bandaríska sagnfræðingsins Stanleys Paynes af þrennu: andstöðu við frjálslyndisstefnu, íhaldsstefnu og kommúnisma; tilraun til að taka stjórn á öllum sviðum þjóðlífsins og beina kröftum að ágengri utanríkisstefnu; rómantískri dýrkun á ofbeldi, karlmennsku, æskufjöri og umfram allt öflugum leiðtogum, sem virkjað gætu fjöldann til samvirkrar framningar.
Samkvæmt þessu voru Mússólíni og Hitler vitaskuld fasistar. En er Donald Trump það? Því fer fjarri. Trump er að vísu andstæðingur kommúnisma, en sækir margt í frjálslyndisstefnu (lækkun skatta) og íhaldsstefnu (stuðning við fjölskylduna). Hann vill takmarka hlutverk ríkisis og hafnar ágengri utanríkisstefnu, en telur, að Evrópuríkin eigi að kosta sjálf varnir sínar, eins og eðlilegt er. Hann dregur að vísu upp þá mynd af sér, að hann sé öflugur leiðtogi, en hann vill einkum virkja einkaframtakið, ekki fjöldann.
Hvað er Trump þá? Hann er pópulisti, fylgismaður lýðstefnu, þótt spurningin sé, hvort hann meti meira lýðhylli en lýðskrum, að finna og framkvæma vilja kjósenda frekar en egna þá upp og æsa. Jafnframt jaðrar Trump við að vera forræðissinni, authoritarian. Í bandarískum stjórnmálum minnir hann einna helst á Andrew Jackson, forseta Bandaríkjanna 18291837, og Huey Long, ríkisstjóra í Louisiana 19281932.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 9. nóvember 2024.)
27.12.2024 | 08:53
Fiskur, fé og farsæld
Í dag, fimmtudaginn 7. nóvember 2024, gefur Almenna bókafélagið út bókina Fish, Wealth, and Welfare (Fiskur, fé og farsæld) eftir Ragnar Árnason, prófessor emeritus í fiskihagfræði í Háskóla Íslands. Hefur hún að geyma tíu merkustu ritgerðir Ragnars á ensku í fiskihagfræði, en eins og prófessor Gary Libecap sagði í viðtali við Morgunblaðið haustið 2023, er Ragnar einn virtasti fiskihagfræðingur heims. Jafnframt starfi sínu í Háskólanum hefur hann verið sérfræðingur Alþjóðabankans í grein sinni og gefið út um 200 fræðilegar ritgerðir, skýrslur og bækur. Ritstjóri hinnar nýju bókar er dr. Birgir Þór Runólfsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Á morgun, föstudaginn 8. nóvember, halda hagfræðideildin og RSE, Rannsóknamiðstöð í samfélags- og efnahagsmálum, alþjóðlega ráðstefnu af þessu tilefni um fiskihagfræði í hátíðarsal Háskóla Íslands klukkan 16 til 18, og verða bornar fram veitingar í anddyri að ráðstefnu lokinni. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Frummælendur eru auk Ragnars prófessorarnir Rögnvaldur Hannesson og Trond Bjorndal, en í pallborði verða prófessor Peder Andersen, Kaupmannahafnarháskóla, Árni M. Mathiesen, fyrrverandi aðstoðarforstjóri FAO, og Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður. Verður tækifærið á morgun notað til að afhenda bók Ragnars áskrifendum.
Hver var ofveiðivandinn?
Ekki þarf að hafa mörg orð um, hversu mikilvæg hagkvæm nýting fiskistofna er á Íslandi, sem Ketill flatnefur kallaði þegar á níundu öld veiðistöð. Sjálfur fór ég ekki að hugsa um þetta mál af neinni alvöru fyrr en á ráðstefnu Stjórnunarfélagsins um Ísland árið 2000, sem haldin var á Þingvöllum haustið 1980. Þá sagði Haraldur Ólafsson mannfræðingur þann vanda óleystan, hvernig koma ætti í veg fyrir ofveiði á Íslandsmiðum. Hefðu Íslendingar ef til vill þurrausið fiskistofnana, þegar komið væri fram á árið 2000? Yrði ríkið ekki að taka nú þegar í taumana? Ég varpaði því fram, hvort ekki mætti leysa ofveiðivandann á sama hátt og annan ofnýtingarvanda auðlinda, með því að skilgreina einkanýtingarrétt einstaklinga og þá væntanlega útgerðarmanna sjálfra á hinum ofnýttu gæðum, fiskimiðum eða fiskistofnum. Sótti ég þetta ráð í smiðju austurrísku hagfræðinganna Ludwigs von Mises og Friedrichs A. Hayeks, en ég hafði sökkt mér niður í rit þeirra.
Óspart var gert gys að þessu á ráðstefnunni og síðan í Þjóðviljanum, málgagni sósíalista, en ritstjóri þess, Árni Bergmann, var einn ráðstefnugesta. Það er hins vegar fróðlegt, að á sama tíma fór Ragnar Árnason aðra leið, en að sama marki, með strangvísindalegum rannsóknum í fiskihagfræði, studdum stærðfræði. Hann lauk doktorsprófi í auðlindahagfræði frá Háskólanum í Bresku Kólumbíu árið 1984, og þegar sérstakt prófessorsembætti var stofnað í fiskihagfræði við Háskóla Íslands, var Ragnar skipaður í það, gegndi því til sjötugs og er enn að, sjötíu og fimm ára.
Breski hagfræðingurinn Arthur C. Pigou lýsti hinum almenna ofnýtingarvanda með frægu dæmi í bók sinni Farsældarfræði (The Economics of Welfare) árið 1920. Tveir misgóðir vegir liggja milli tveggja staða. Betri vegurinn er þröngur, verri vegurinn víður. Pigou benti á, að umferðin myndi ekki skiptast á hagkvæman hátt milli veganna tveggja. Þröngi vegurinn yrði ofnýttur, víði vegurinn vannýttur. Ástæðan var, að hver og einn ökumaður tók ekki með í reikninginn kostnaðinn af öðrum ökumönnum. Þeir þyrptust því allir á betri veginn og eyddi ábatanum af honum. Það gerðu þeir með umferðartöfum og öðrum kostnaði af ofnýtingu. Lausn Pigous var, að ríkið innheimti vegartoll af betri veginum, sem endurspeglaði umframkosti hans.
Yfirsjón um auðlindaskatt
Þeir íslensku hagfræðingar, sem fyrstir skrifuðu um ofveiðivandann, þeir Bjarni Bragi Jónsson og Gylfi Þ. Gíslason, færðu greiningu Pigous óbreytta yfir á fiskveiðar. Ef útgerðarmenn sæktu tvö misgóð fiskimið, þá myndu þeir ofnýta betri miðin og vannýta hin verri. Þeir tækju ekki með í reikninginn kostnaðinn af sókn annarra. Lausn þeirra Bjarna Braga og Gylfa var auðlindaskattur, sem ríkið myndi innheimta af útgerðarmönnum og ætti að endurspegla misjafna kosti ólíkra fiskimiða í samanburði við önnur knöpp gæði, sem menn nýttu sér til ávinnings. Auðlindaskatturinn var þannig sama eðlis og vegartollur Pigous.
Bandaríski hagfræðingurinn Frank H. Knight benti hins vegar þegar árið 1924 á yfirsjón í greiningu Pigous. Honum hafði sést yfir þann möguleika, að vegirnir misgóðu væru í einkaeigu. Þá myndi eigandi betri vegarins innheimta hærri vegartoll af honum en eigandi verri vegarins og umferðin skiptast sjálfkrafa á hagkvæman hátt milli veganna tveggja. (Pigou fjarlægði þegjandi og hljóðalaust vegardæmið úr næstu útgáfu bókar sinnar.) Árið 1990 birti Ragnar Árnason tímamótaritgerð í Canadian Journal of Economics, sem er fyrsta greinin í hinni nýju bók hans, og þar tekur hann upp þráðinn frá Knight. Hann bendir á, að auðlindaskattur í anda Pigous krefjist miklu meiri upplýsinga en embættismenn í opinberri fiskistofu ráði yfir. Hins vegar sé til einföld aðferð til að takmarka aðgang að fiskimiðum, svo að nýting þeirra verði hagkvæm. Hún sé að úthluta framseljanlegum og ótímabundnum nýtingarréttindum á fiskistofni til útgerðarmanna og setja leyfilegan hámarksafla úr stofninum á hverri vertíð á þann hátt, að þessi réttindi verði í heild sem verðmætust. Þannig spari fiskistofumenn sér að afla margvíslegra upplýsinga, sem sé hvort sem er erfitt eða ókleift að tína saman. Í stað þess að ríkið stjórni veiðunum geti það látið sér nægja að setja um þær almennar reglur.
Á Íslandi höfðu útgerðarmenn og embættismenn raunar smám saman verið að þreifa sig áfram í átt að svipaðri lausn árin á undan, og hún var lögfest með heildarlögum um fiskveiðar vorið 1990. Þetta var ekkert annað en hið margrædda og umdeilda kvótakerfi í sjávarútvegi, sem síðan hefur skilað stórkostlegum árangri. Þótt þetta kerfi hafi því frekar verið niðurstaða aðferðar happa og glappa en alsköpuð gyðja, sem sprottið hafi úr höfði vitringa eins og Aþena úr höfði Seifs forðum, munaði mjög um, að þeir Ragnar Árnason og Rögnvaldur Hannesson lögðu sitt lóð á vogarskálina, veittu góð ráð, útskýrðu kerfið.
Einkaeignarréttur á auðlindum
Þegar litið er yfir greinarnar í hinni nýju bók Ragnars Árnasonar, sést, að hann hefur með árunum lagt sífellt meiri áherslu á einkaeignarrétt á auðlindum til tryggingar hagkvæmri nýtingu þeirra. Hann bendir á, að slíkur réttur sé forsenda frjálsra viðskipta og því upphaflegri en þau. Menn færðu sig af hirðingjastiginu, þegar eignarréttur myndaðist á landi og kvikfénaði með girðingum og merkingum (fencing and branding), en eftir það gátu þeir skipst á frjálsum markaði á þeim varningi, sem þessi gæði gáfu af sér. Því traustari og betur varinn sem einkaeignarréttur á auðlindum sé, því hagkvæmari verði nýting þeirra til langs tíma litið. Það, sem stundum sé kallað markaðsbrestur (market failure), þegar erfitt virðist eða ókleift að stunda frjáls viðskipti með gæði, stafi iðulega af því, að ekki hafi myndast einkaeignarréttur á slíkum gæðum. Dæmi Pigous um vegina tvo var eins og Knight benti á um, að vegirnir voru ekki í einkaeigu, svo að aðgangur að þeim var ekki verðlagður í samræmi við misjafna kosti þeirra. Annað dæmi er mengun í ám eða vötnum. Ástæðan er sú, að enginn á og gætir þessara gæða. Þriðja dæmið eru dýr í útrýmingarhættu, svo sem fílar og nashyrningar í Afríku. Enn er ástæðan, að enginn á þessa stofna og gætir þeirra. Umhverfisvernd krefst umhverfisverndara.
Mikilvægt er einnig að horfa ekki aðeins á gæðin af sjónarhóli samtímans, miðað við núverandi nýtingarkosti og tiltæka tækni. Þegar einkaeignarréttur er á slíkum gæðum, geta eigendurnir látið reyna á nýja nýtingarmöguleika, þróað nýja tækni. Sköpunarmáttur hins frjálsa markaðar er aðallega vegna þess, að hann er eins og risastór tilraunastofa, þar sem menn prófa sig áfram, bera sig saman við aðra, keppa við aðra með því að keppast við sjálfir, öðlast nýja þekkingu og taka í notkun nýja tækni. Til þess þarf einkaeignarrétt, fjárfesta, frumkvöðla.
Uppboðsleiðin óraunhæf
Þetta skiptir allt máli, þegar skoðaðar eru nýrri tillögur um aðra tilhögun veiða á Íslandsmiðum en þá, sem varð fyrir valinu. Sumir viðurkenna, að kvótakerfið sé að vísu hagkvæmt, en hin upphaflega úthlutun hafi verið ranglát. Eðlilegast hefði verið, segja þeir, að ríkið hefði boðið upp nýtingarréttindin, veiðileyfin, aflakvótana. En uppboðssinnum yfirsést úrlausnarefnið. Það var, hvernig ætti að takmarka aðgang að takmörkuðum gæðum, sem höfðu lengi verið nýtt og voru nú greinilega ofnýtt. Talið var, þegar kvótakerfið var sett á í áföngum árin 19751990, að fiskiskipaflotinn væri nær tvöfalt stærri en hann þyrfti að vera. Breyta þurfti þó fyrirkomulagi fiskveiða á þann hátt, að sem minnst röskun yrði á högum þeirra, sem nýttu höfðu fiskimiðin. Hefði miðunum skyndilega verið lokað, eftir að þau höfðu öldum saman verið opin, en aðgangur síðan verið boðinn upp og verð haft nógu hátt til þess, að helmingur fiskiskiptaflotans hefði strax orðið að hætta veiðum (eins og lagt var til), þá hefði helmingur útgerðarfyrirtækjanna þurft að horfa upp á, að fjárfestingar þeirra í skipum, veiðarfærum og mannauði hefðu skyndilega orðið verðlausar. Það gefur augaleið, að ekkert samkomulag hefði orðið um slíka breytingu.
Eðlilegasta úthlutunaraðferðin var auðvitað svokölluð afaregla (grandfathering), sem var úthlutun eftir aflareynslu. Þeir, sem veitt höfðu til dæmis fimm af hundraði heildarafla í fiskistofni síðustu árin, áður en fiskimiðum var lokað, fengu heimild til að veiða fimm af hundraði leyfilegs hámarksafla á vertíðinni. Ólíkt uppboðsleiðinni var afareglan Pareto-hagkvæm, en með því er átt við, að við breytinguna, hagræðinguna, var hagur einskis manns skertur, en hagur að minnsta kosti sumra mjög bættur, eins og kom á daginn á Íslandi.
Hlunnindi í almenningi
Nú segja sumir að vísu, að hagur þjóðarinnar hafi verið skertur með kvótakerfinu, því að fámennum hópi útgerðarmanna hafi verið afhent öll nýtingarréttindi á Íslandsmiðum, sem séu lögum samkvæmt í þjóðareign. En þá er þess að gæta, að í raun og veru var enginn réttur tekinn af öðrum, þegar fiskimiðunum var lokað, því að eini rétturinn, sem hvarf úr sögu, var rétturinn til að gera út á núlli, eins og fiskihagfræðingar höfðu sýnt fram á: Við ótakmarkaðan aðgang að fiskimiðum jókst sóknin upp að því marki, að allur ábati af veiðunum hvarf í óþörfum kostnaði. Það var vitanlega enginn bættari við það, að þessi réttur til að gera út á núlli hyrfi. Spurningin er síðan, hvað orðið þjóðareign merki og til hvers það vísi. Hugmyndin um þjóðareign auðlinda ætti að minnsta kosti ekki að merkja, að ríkið eigi auðlindirnar og nýti. Bolsévíkar komu með fádæma hörku á samyrkju í Rússlandi og Úkraínu, og það kostaði hungursneyðir á víðáttumikilli sléttu, sem var eins og sköpuð til akuryrkju. Olíulindir eru í eigu ríkisins í Mexíkó, en einstaklinga í Texas, og þó flykkist fólk ekki frá Texas til Mexíkó, heldur öfugt.
Eðlilegast er að leggja aðra merkingu í ákvæði um þjóðareign auðlinda: Fara skuli svo með auðlindir, að þær skili hámarksarði til langs tíma í þjóðarbúið. Það á svo sannarlega við um kvótakerfið íslenska í sjávarútvegi. Það eru hvorki fiskimiðin né fiskistofnarnir, sem eru undirorpnir eignarrétti einstaklinga, heldur nýtingarréttindin, sem líta má á sem hlunnindi í almenningi, sem ekki verði tekin bótalaust af handhöfum þeirra, enda hafi þau myndast í langri þróun og hlotið sögulega helgun, eins og lögfræðingar (þar á meðal prófessor Sigurður Líndal) myndu segja. Ragnar Árnason hefur síðan spurt, við hvaða skipulag þjóðin græði mest á fiskveiðum, og svarað henni svo, að það sé við sem traustust og föstust nýtingarréttindi í höndum einkafyrirtækja. Fiskveiðiarðurinn rennur ekki til þjóðarinnar, ef ríkið reynir að gera hann upptækan, heldur gerist þá hvort tveggja, að hann minnkar og verður enn einn tekjustofn atvinnustjórnmálamanna í samkeppni þeirra um atkvæði. Það er ekki tilviljun, að á Íslandi skilar sjávarútvegur beint og óbeint feikilegu fé í þjóðarbúið, en í flestum öðrum löndum er hann rekinn með tapi og er þess vegna þung byrði á skattgreiðendum. Ragnar hefur líka bent á, að sjávarútvegur er á Íslandi útflutningsatvinnuvegur í harðri samkeppni við sömu grein í öðrum löndum, og þess vegna þurfi að fara varlega í að skattleggja hann umfram aðra atvinnuvegi.
Salka Valka sagði sem frægt varð: Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er lífið þó umfram allt saltfiskur, en ekki draumaringl. Í bók sinni um fisk, fé og farsæld fer Ragnar Árnason ekki með neitt draumaringl, heldur rökstyður, hvernig hagkvæmast sé að nýta auðlindir og þá sérstaklega þær, sem Íslendingar eiga. Þar heldur hann sér fast við hina fræðilegu hlið málsins. Þótt hann noti iðulega stærðfræði til að skýra og skerpa boðskap sinn, endursegir hann um leið á auðskiljanlegan hátt röksemdir sínar. Það auðveldar lesturinn, að Birgir Þór Runólfsson skrifar fróðlegan inngang. Og þótt lífið sé auðvitað ekki aðeins saltfiskur, skipta góð almenn lífskjör miklu máli. Saltfiskurinn er til að selja og féð fyrir hann til að velja. Salka Valka sagði líka, að það væru þunnar trakteringar að láta menn þræla nótt og dag alla sína ævi, hafa hvorki í sig né á. Þetta var þó í þúsund ár hlutskipti fámennrar þjóðar í harðbýlu landi, áður en sjávarútvegur varð höfuðatvinnuvegur Íslendinga. Það er engin tilviljun, að nú eru Íslendingar með einhverjar hæstu meðaltekjur í heimi, auk þess sem fátækt er hverfandi og tekjudreifing tiltölulega jöfn.
Vegurinn til fjár og farsældar
Fiskur var ekki aðeins tákn Íslands öldum saman í skjaldarmerki Danakonungs, heldur vegur til fjár og farsældar, eins og þeir Thor Jensen í Kveldúlfi, Jón Ólafsson í Alliance, Ingvar Vilhjálmsson, Tryggvi Ófeigsson og fjölmargir aðrir dugmiklir athafnamenn sýndu á öndverðri tuttugustu öld, þegar þjóðin skeiðaði á sjömílnaskóm úr fátækt til bjargálna. Og nú hafa þau Kristján Loftsson í Hval, Guðmundur Kristjánsson í Brimi, Guðbjörg Matthíasdóttir í Ísfélaginu, Sigurgeir Brynjar Kristjánsson í Vinnslustöðinni, Guðrún Lárusdóttir í Stálskipum, Þorsteinn Már Baldvinsson í Samherja, Þórólfur Gíslason í Kaupfélagi Skagfirðinga og margir aðrir framkvæmdasamir og forsjálir athafnamenn lyft upp þeirra merki, landi og þjóð til heilla.
(Grein í Morgunblaðinu 7. nóvember 2024.)
27.12.2024 | 08:51
450 ára saga merkilegs lýðveldis
Þegar Vilhjálmur kardínáli af Sabína kom til Noregi árið 1247 í því skyni að krýna Hákon gamla, sagði hann þá ósannlegt um Ísland, að það þjónaði ekki undir konungi eins og öll önnur lönd. Íslenskir sagnfræðingar hafa ekki bent á, hversu fráleit þessi fullyrðing var miðað við aðstæður sjálfs kardínálans. Hann var frá Ítalíu, þar sem nokkur borgríki þjónuðu ekki undir neinn konung, og hann hafði árið 1222 verið í Líflandi (Eistlandi og Lettlandi nútímans) að miðla málum milli riddarareglu, sem réð landinu, og nágrannaríkjanna. En mér duttu þessi orð í hug, þegar ég var á dögunum staddur í króatísku borginni Dubrovnik við Adríahaf. Árið 1247 var borgin enn á valdi Feneyinga (og ekki neins konungs), en árið 1358 tókst íbúunum að stofna sjálfstætt lýðveldi, sem stóð allt til 1808, þegar Napóleon beitti valdi til að leggja það niður.
Lýðveldið Dubrovnik (sem þá var nefnt ítalska nafninu Ragusa) var að sínu leyti jafnmerkilegt og íslenska þjóðveldið. Því stjórnuðu (eins og íslenska þjóðveldinu) nokkrar ættir, um fimmtíu (en á Íslandi voru 39 goðar). Menn úr þessum ættum settust allir í stórráð borgarinnar, þegar þeir náðu 18 ára aldri. Stórráðið kaus sjö manna framkvæmdaráð, 45 manna öldungadeild og höfuðsmann (rektor), sem kom fram fyrir hönd lýðveldisins út á við og fór með framkvæmdavald í samstarfi við framkvæmdaráðið og öldungadeildina. Reynt var að koma í veg fyrir frændhygli og aðra spillingu með því, að hver höfuðsmaður sat aðeins í einn mánuð, og ekki mátti endurkjósa hann fyrr en eftir tvö ár. Ef til vill mætti líkja honum við íslenska lögsögumanninn, þótt sá væri kjörinn til þriggja ára, en hann var í rauninni eini embættismaður Þjóðveldisins.
Stjórnarfar var frjálslegt í Dubrovnik, þótt aðalsættirnar fimmtíu færi einar með ríkisvaldið. Borgin dafnaði vel og var miðstöð verslunar milli Tyrkjaveldis soldánsins og Evrópuríkja. Urðu margir íbúar auðugir. Löggjöf var sniðin að þörfum verslunar og atvinnulífs, en á fána lýðveldisins var letrað orðið Libertas, frelsi.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 2. nóvember 2024.)
27.12.2024 | 08:50
Dubrovnik, október 2024
Dubrovnik í Króatíu er ein fallegasta borg, sem ég hef komið til. Þar talaði ég á ráðstefnu evrópskra íhalds- og umbótaflokka um fjölskylduna, aldursþróun og frjósemi 18. október 2024. Ég rifjaði upp, að Aristóteles gerði í Mælskulistinni greinarmun á viðhorfum æskumanna, sem létu stjórnast af vonum, og öldunga, sem yljuðu sér við minningar. Rosknu fólki hefði fjölgað hlutfallslega með hækkandi meðalaldri, og það kysi frekar í kosningum en ungt fólk, svo að það hefði síaukin stjórnmálaáhrif. En ellin þyrfti síður en svo að vera byrði á æskunni. Hún gæti lagt sitt af mörkum til aukinnar framleiðslu og neyslu. Kænir stjórnmálamenn ættu að höfða jafnt til vona æskunnar, fjölga tækifærum, og ótta ellinnar, verjast óþjóðalýð.
Ég sagði hagfræðinga hafa bent á, að fjölskyldan hefði löngum verið eins konar gagnkvæmt tryggingarfélag og vettvangur sjálfvalinnar verkaskiptingar kynjanna, jafnframt því sem hún væri miklu hagkvæmari neyslueining en einstaklingurinn. Fjölskyldan miðlaði líka nauðsynlegri þekkingu í báðar áttir. Góðir foreldrar ælu börn sín upp við þær reglur og dygðir, sem best hefðu reynst, svo sem stundvísi, vinnusemi, orðheldni og hreinlæti. Þannig miðluðu þeir til þeirra reynsluviti fyrri kynslóða, fortíðinni. Fjölskyldan bætti síðan framtíðinni við í útreikninga og ákvarðanir einstaklinga, því að þeir vildu sem foreldrar skilja eitthvað eftir fyrir börn sín, búa í haginn fyrir þau. Erfðaskattur væri ranglátur, því að með honum væri umbunað fyrir eyðslu og refsað fyrir sparnað, samtíðin tekin fram yfir framtíðina.
Ég bætti því við, að fjölskyldan gæddi líf einstaklinganna tilgangi og merkingu. Hún víkkaði út sjálfið. Menn lifðu ekki aðeins fyrir sjálfa sig, heldur líka fyrir maka og börn.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 26. október 2024.)