Ráðstefna um Írland og Ísland

Ég tók þátt í því ásamt öðrum að skipuleggja málstofu á ráðstefnu Smáríkjaseturs Háskóla Íslands föstudaginn 14. september 2007 í hátíðasal Háskóla Íslands kl. 13-14.30. Þar flutti ég erindi undir heitinu „The Icelandic Economic Miracle“. Einnig talaði helsti skattasérfræðingur Íra, prófessor Brendan Walsh, um írska efnahagsundrið, sem hann rekur ekki síst til skattalækkana. Dr. Georges Baur lýsti reynslu Liechtensteins. Katrín Ólafsdóttir, lektor í Háskólanum í Reykjavík, var fundarstjóri.  Málstofan var liður í rannsóknaverkefni, sem ég hef umsjón með hjá Félagsvísindastofnun. Daginn áður kynnti ég erindi mitt í Ísland í dag á Stöð tvö.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband