21.11.2015 | 10:26
Gamansemi á Rotary-fundi
Ég var ræðumaður á sviðamessu Rotary-klúbbs í Kópavogi, sem haldin var í Hernámssetrinu í Hvalfirði á dögunum. Þar sagði ég frá því, þegar Davíð Oddsson myndaði sína fyrstu ríkisstjórn þriðjudaginn 30. apríl 1991. Tók hann við af Steingrími Hermannssyni, sem hafði verið forsætisráðherra samtals í sjö ár. Við fórum nokkur á Hótel Holt um kvöldið til að halda upp á það. Daginn eftir var frídagur, 1. maí. (Sparaðist raunar stórfé við það, að hin fjölmenna aðstoðarmannasveit ráðherra vann ekki fram yfir mánaðamót.)
Fimmtudaginn 2. maí var hringt í forsætisráðuneytið: Er Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra við? Símastúlkan svaraði: Nei, og hann er ekki lengur forsætisráðherra. Föstudaginn 3. maí var aftur hringt: Er Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra við? Enn svaraði símastúlkan: Nei, og hann er nú ekki lengur forsætisráðherra.
Leið nú helgin. Mánudaginn 6. maí var aftur hringt í ráðuneytið: Er Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra við? Símastúlkan svaraði enn og aftur: Nei, og hann er ekki lengur forsætisráðherra. Hún bætti við: Ég hef sagt yður þetta þrisvar, því að ég þekki röddina aftur. Þér hafið nú hringt hingað þrisvar: En ég segið yður aftur: Steingrímur Hermannsson er ekki lengur forsætisráðherra!
Maðurinn svaraði: Já, en mér finnst bara svo gaman að heyra það.
[Hér er síðan upptaka af fundi á dögunum um valdatíð Davíðs, en sumir á Rotary-samkomunni höfðu verið þar og minntust á hann í ræðum sínum:]
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:28 | Facebook