Höggstokkur í stađ gálga

Marie Antoinette á leiđ á höggstokkinnFyrir nokkru hélt ég ţví hér fram, ađ munurinn á ensku og bandarísku byltingunum annars vegar og frönsku og rússnesku byltingunum hins vegar vćri, ađ hinar fyrrnefndu hefđu heppnast, en hinar síđarnefndu ekki. Örn Ólafsson bókmenntafrćđingur andmćlti mér um frönsku byltinguna. Ţar hefđi yfirstéttin veriđ svipt forréttindum sínum. Örn horfir fram hjá ţví, ađ sums stađar hefur tekist ađ afnema forréttindi án teljandi blóđsúthellinga. Frönsku byltingunni lauk hins vegar međ ógnarstjórn Maximiliens Robespierres og síđan valdaráni Napóleons Bonaparters.

Margt hefur hins vegar veriđ sögulegt sagt um frönsku byltinguna. Frćg eru til dćmis orđ Edmunds Burkes ţegar áriđ 1790, fyrir daga ógnarstjórnarinnar: „In the groves of their academy, at the end of every vista, you see nothing but the gallows.“ Í skógarrjóđrum ţessara skólaspekinga, alls stađar ţar sem út fyrir sést, ber gálga viđ himin.

Spádómur Burkes rćttist, nema hvađ byltingarmennirnir tóku upp fljótvirkari aftökuvél en gálga, fallöxina. Ţegar ein byltingarkonan, frú Roland, var leidd á höggstokkinn 8. nóvember 1793, var hún hvítklćdd og međ sítt, svart hár, slegiđ. Hún sneri sér ađ styttu af frelsisgyđjunni og mćlti: „Ô liberté! Ô liberté! Que de crimes on commet en ton nom!“ Frelsi, ó, frelsi! Hversu margir glćpir hafa veriđ framdir í nafni ţínu! Annar byltingarmađur, Pierre Vergniaud, sem einnig lét lífiđ á höggstokknum, sagđi, ađ byltingin ćti börnin sín, og hefur oft veriđ til ţeirra orđa veriđ vitnađ síđan.

Hannes Pétursson orti um leiđ drottningarinnar frönsku, Marie Antoinette, á aftökustađinn:

Er von hún skilji ađ allur ţessi ćsti

óhreini lýđur, ţetta grimma vopn

sem blikar ţarna blóđugt, óseđjandi

sem bölvađ skrímsli, sáir dauđa og kvöl

sé hvítur draumur hugsuđanna, framtíđ

hollari betri og eina völ

en hitt sem nú skal rifiđ upp međ rótum;

hiđ rotna stjórnarfar og mikla böl

sé hún sem yfir hópinn orđlaus starir

hrein og föl.

Hér áttu líka viđ orđ Halldórs Kiljans Laxness í Kristnihaldi undir Jökli, ţegar hann talađi um hina „hörundslausu tröllskessu Byltíngu sem vildi mannblót“.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband