Greining Péturs Blöndals

Ástæða er til að vekja athygli á greiningu Péturs Blöndals á vanda okkar Íslendinga í viðtali við Fréttablaðið. Hann segir, að mistök Sjálfstæðisflokksins hafi verið að minnka ekki ríkisbáknið þann langa tíma, sem hann hafði völd. Það hafi þanist út.

mynd_1035644.jpgÞetta er rétt, að minnsta kosti eftir 1998. Í bók minni, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör, sem kom út í fyrra, er fróðlegt línurit, sem sýnir ríkisútgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu. Þar sést, að þau jukust ekki í fjármálaráðherratíð Friðriks Sophussonar (1991–1998), en eftir það.

Ég tel, að Friðrik hafi staðið sig afar vel, og þetta línurit sýnir það, en í raun hefðu hann og aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins átt að standa sig enn betur: Þeir hefðu átt að fækka opinberum starfsmönnum, en ekki fjölga. Þeir hefðu átt að lækka skatta enn frekar en gert var.

Pétur hefur líka rétt fyrir sér í ráðum sínum til okkar, sem böslum við að reka heimili, þótt ég verði að játa, að stundum mistekst mér að fara eftir slíkum ráðum. En um það er mér sjálfum að kenna, en hvorki Pétri, Jóhönnu, Steingrími né neinum öðrum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband