5.7.2010 | 18:29
Sagan komin hringinn
Fræg er sagan af Baldvini skálda Jónatanssyni, sem skráði þjóðsögur fyrir Odd Björnsson. Einhvern tímann grunaði Odd, að Baldvin ætti sjálfur meiri þátt í sögunum en hann vildi vera láta, og bað hann að geta heimilda. Dýrleif í Parti sagði mér, og hafði ég sjálfur sagt henni fyrir ári, svaraði Baldvin skáldi.
Sagan var komin hringinn.
Hið sama er að segja um sumar fréttir á Íslandi. Þær eru hafðar eftir útlendingum, en í raun komnar frá Íslendingum. Nýjasta dæmið er, að Eyjan birtir í dag frétt af bloggi hins kunna bandaríska hagfræðings Pauls Krugmans um Ísland.
En Krugman endurtekur og vitnar í það, sem Stefán Ólafsson sagði á ráðstefnu í Lúxemborg, þar sem þeir voru báðir á dögunum. Við vitum öll, hvað Stefán sagði, og það hefur verið marghrakið, meðal annars í bók, sem ég gaf út í árslok 2009, Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör.
Stefán hélt því fram, að tekjuskiptingin á Íslandi hefði fyrir tilstilli stjórnvalda orðið miklu ójafnari en annars staðar á Norðurlöndum árin 19952004. Svo var ekki.
Stefán hélt því fram, að skattar hefðu verið hækkaðir hér á laun, meðal annars með því að hækka ekki skattleysismörk með verðlagi. Svo var ekki.
Stefán hélt því fram, að fátækt hefði verið meiri á Íslandi árið 2004 en annars staðar á Norðurlöndum. Svo var ekki.
Stefán endurtekur fullyrðingar sínar erlendis. Útlendingur tekur þær upp. Íslenskir fjölmiðlar taka þær upp eftir útlendingnum. Sagan er komin hringinn.
Dýrleif í Parti sagði mér, og hafði ég sjálfur sagt henni fyrir ári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook