26.9.2020 | 09:05
Frelsi Loka ekki síður en Þórs
Almannaveitur upplýsinga, eins og óhætt er að kalla Facebook, Twitter og Amazon, eru teknar upp á því að ritskoða fólk, vegna þess að það er talið hafa fráleitar eða ógeðfelldar skoðanir, þótt ekki sé að vísu alltaf full samkvæmni í þeirri ritskoðun. Full ástæða er til að spyrna við fótum. Frelsið er líka frelsi til að hafa fráleitar eða ógeðfelldar skoðanir. Um þetta orti gamli Grundtvig:
Frihed for Loke saavel som for Thor.
Þorvaldur hefur enn fremur skrifað á Facebook: Sjálfstæðismenn sem tala um lýðræði orka nú orðið á mig eins og nasistar að auglýsa gasgrill. Auðvitað er þessi samlíking hans ógeðfelld og til þess fallin að gera lítið úr hinni hræðilegu Helför. En frelsið er líka frelsi Þorvaldar til að komast ósmekklega að orði.
Við bönnum ekki áfengið út af rónanum, þótt við ráðum hann vitanlega ekki til að afgreiða í vínbúð. Og við tökum ekki málfrelsið af fólki, þótt sumir láti í ljós fráleitar eða ógeðfelldar skoðanir. Við erum ekki að samþykkja þessar skoðanir með því að umbera þær eða þola. Virða ber frelsi Loka ekki síður en Þórs.
(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 27. júní 2020.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.2.2021 kl. 11:06 | Facebook