Stefán Pálsson um landsdómsmálið

Stefán Pálsson sagnfræðingur birti um daginn færslu á Facebook um landsdómsmálið, og er þar eina efnislega athugasemdin, sem ég hef fengið við bók mína um það mál. Þar sagði meðal annars:

Ég kveikti á Silfrinu fyrir rælni í morgun. Þar var Hannes Hólmsteinn að segja frá nýrri bók sinni um Landsdómsmálið. Munið með mér að ég þarf endilega ekki að næla mér í hana. Reifun hans á málinu kom mér þó spánskt fyrir sjónir eftir að hafa fylgst nokkuð náið með störfum vinstri stjórnarinnar bak við tjöldin úr talsvert annarri átt en HHG.
Hannes telur að þróun málsins og þá sérstaklega niðurstaða þingnefndarinanr og í kjölfarið kosningin í þinginu hafi verið afleiðingin af miklum póker Jóhönnu Sigurðardóttur sem hafi verið að reyna að friða ólík öfl og halda saman bæði eigin flokki og ríkisstjórninni. Samkvæmt þessu á t.d. Steingrímur Joð og hans fólk að hafa verið sérstaklega áfram um að Landsdómur skyldi fella dóma yfir Geir Haarde og mögulega fleirum.
Þetta er gjörsamlega á skjön við upplifun mína frá þessum tíma.
 
Karl Th. Birgisson, sem er innanbúðarmaður í Samfylkingunni, skrifaði athugasemd:
 
Þetta er svolítið sérkennileg söguskoðun. Ég fylgdist grannt með þessum atburðum úr annarri átt. Landsdómsmálið var ekkert keppikefli Samfó, nema örfárra einstaklinga sem voru fæstir í þingflokknum.(Ekki gleyma að upphaflega voru tveir fyrrverandi ráðherrar S undir í málinu.) – Þvert á móti var þrýstingurinn hávær frá sumum þingmönnum Vg, einkum þeim sem smám saman urðu stjórnarandstæðingar.
 
Ég skrifaði athugasemd:
 
Það sýndi sig best, hversu mikið keppikefli ákæran gegn Geir var Steingrími og félögum, hvernig þeir brugðust við afturköllunartillögunni. Þegar Ásta Ragnheiður þingforseti ákvað að taka hana á dagskrá, hvæsti Steingrímur á hana, að hún hefði misst traust sitt, og Jóhanna reyndi að setja hana af sem þingforseta. Þá felldi Steingrímur grímuna um, að hann hefði greitt atkvæði með ákæru „með sorg í hjarta“.
 
Mörður Árnason, sem sat þá á þingi fyrir Samfylkinguna, skrifaði:
 
Það var ekkert makk hjá okkur. Þeir sem tengdust gömlu stjórninni sögðu nei á alla fjóra, við hin sögðum mismikið já. Það var reynt að fá þetta einhvernveginn rætt og „samræmt“ í þingflokknum en við neituðum. Á þessa atburðarás alla af mínum sjónarhóli í dagbók, sem þarf kannski einhverntímann að draga fram.
 
Eftir að aðrir höfðu látið í ljós þá skoðun, að ákæra hefði átt fleiri ráðherra en Geir H. Haarde, skrifaði Mörður:
 
Einsogt ég sagði -- „þingflokkur xS“ klúðraði engu því þingflokkurinn tók enga sameiginlega afstöðu. Helmingurinn sagði nei, en hinir sögðu já á suma og nei á aðra. Við áttum, sagði Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari, að taka afstöðu sjálf, hvert um sig , eftir að hafa skoðað málið eins vel og hægt var, og taka afstöðu einsog saksóknari tekur -- miðað við 1) sennilega „sekt“, 2) mögulegan árangur í málsókn. Ég held að við höfum gert það (þ.e. a.m.k. kosti við í já-hópnum). Sammála um Árna og BGS, en mér fannst engin leið að draga línu milli Björgvins viðskiptaráðherra og Ingibjargar Sólrúnar flokksformanns, og ætlaði að segja já á alla fjóra. -- Hvað Hannesi svo kann að finnast um þetta eða þykist hafa fundið út um þetta er náttúrlega bara einsog hver annar brandari.
 
Guðmundur Andri Thorsson, sem situr nú á þingi fyrir Samfylkinguna, skrifaði athugasemd:
 
Ég hafði á tilfinningunni að málið væri ekki síst drifið áfram af Atla Gíslasyni.
 
Þessar umræður eru merkilegar að því leyti, að Samfylkingarmennirnir, sem tóku þátt í þeim, staðfesta það mat mitt í bókinni, að ákæran á hendur Geir H. Haarde hafi verið kappsmál Vinstri grænna. Raunar kom það mjög vel í ljós, eins og ég bendi á, þegar tillaga Bjarna Benediktssonar um afturköllun kom fram. Þá ætluðu Vinstri grænir af göflunum að ganga, eins og Ögmundur Jónasson lýsir í minningabók sinni.

 


Vanhæfi sökum fjármálavafsturs

Landsdomsmalid.kapaÞegar Geir H. Haarde var leiddur fyrir landsdóm 5. mars 2012, sakaður um refsiverða vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins, stóð hann andspænis þremur hæstaréttardómurum, sem höfðu tapað stórfé á bankahruninu, eins og fram kemur í bók minni um landsdómsmálið. Eiríkur Tómasson hafði átt hlutabréf í Landsbankanum og Glitni, sem urðu verðlaus, og hann hafði sem framkvæmdastjóri STEFs geymt stórfé í peningamarkaðssjóðum Landsbankans, og af því tapaðist um 30%. Markús Sigurbjörnsson hafði átt talsvert fé í peningamarkaðssjóðum Glitnis, og af því tapaðist um 20–30%. Viðar Már Matthíasson hafði átt hlutabréf í Landsbankanum. Samtals telst mér til, að beint fjárhagslegt tjón þessara þriggja dómara á bankahruninu hefði numið um 80 milljónum króna (þegar hæsta verð þessara eigna þeirra er fært til verðlags ársins 2022).

Í málum margra íslenskra bankamanna hefur Mannréttindadómstóllinn í Strassborg úrskurðað, að brotið hafi verið á rétti þeirra til óvilhallrar málsmeðferðar, þegar hæstaréttardómarar í málum þeirra hafi átt hlutabréf í bönkunum, sem þeir störfuðu hjá. Þetta á enn frekar við um Geir H. Haarde. Með neyðarlögunum í upphafi bankahruns ákvað hann að bjarga ekki bönkunum, en við þá ákvörðun urðu hlutabréf í bönkunum verðlaus. Jafnframt ákvað hann, að innstæður væru einar forgangskröfur í bú bankanna, ekki hlutdeildarskírteini í peningamarkaðssjóðum, en í viðtali við Morgunblaðið 29. október 2008 líkti Eiríkur Tómasson þeirri ráðstöfun við stuld. Í þriðja lagi ákvað Geir í upphafi bankahrunsins að reyna að bjarga Kaupþingi frekar en Landsbankanum og Glitni, en það kunna hæstaréttardómarnir þrír að hafa talið ganga á hagsmuni sína, því að þeir áttu hlutabréf í Landsbankanum og Glitni og hlutdeildarskírteini í peningamarkaðssjóðum þessara banka, ekki Kaupþings.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 17. desember 2022.)


Stjórnmálamaðurinn Hannes Hafstein

HannesVidhafnarm2Um aldamótin 1900 var Ísland dönsk hjálenda, eins og það var kallað (biland). Það var þá eitt fátækasta land Vestur-Evrópu. Hér vantaði sárlega vegi, brýr, hafnir og vita. Landsmenn bjuggu flestir í köldum, dimmum, saggasömum torfbæjum. Útlendir togarar ösluðu upp að ströndum og létu vörpur sópa, en Íslendingar stunduðu af vanefnum sjó á litlum bátum, stundum óþiljuðum. Þótt tengsl við útlönd væru hinu afskekkta, harðbýla landi lífsnauðsynleg, voru þau takmörkuð, aðeins fólgin í strjálum skipakomum, en það tók að minnsta kosti viku að sigla frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. Margir flúðu fátæktina með því að halda vestur um haf. En það var eins og ný tíð gengi í garð árið 1904, þegar það gerðist hvort tveggja, að Íslendingar fengu heimastjórn og að nýr banki tók til starfa, Íslandsbanki, sem átti ásamt Landsbankanum eftir að fjármagna vélvæðingu fiskiskipaflotans. Fyrir einstaka tilviljun varð nú fyrsti íslenski ráðherrann skáldið, sem hafði ort hvað best um framfaraþrá þjóðarinnar, Hannes Hafstein. Í dag er þess minnst, að hundrað ár eru liðin frá láti hans. Jafnvel heitir andstæðingar Hannesar viðurkenndu á sinni tíð, að hann væri ekki aðeins snjallt og rismikið skáld, heldur líka glæsimenni, sem væri geðfelldur í viðkynningu, vinmargur og vinsæll og kynni að koma virðulega fram fyrir Íslands hönd. Honum var hins vegar stundum brugðið um að hafa ekki aðra hugsjón en eigin frama. Því fór þó fjarri. Hannes stóð traustum fótum í íslenskri stjórnmálaarfleifð og hafði til að bera sterka sannfæringu, þótt vissulega væri hún milduð af eðlislægri sáttfýsi og langri reynslu.

Vinir, ekki þegnar

Hannes Hafstein var umfram allt þjóðrækinn og frjálslyndur framfarasinni. Í minningargrein sagði einn nánasti samstarfsmaður hans, Jón Þorláksson forsætisráðherra: „Grundvallarhugun Hannesar Hafstein í sambandsmálinu hygg ég hafa verið þá, að hann vildi afla landinu þeirra sjálfstæðismerkja og þess sjálfstæðis, sem frekast var samrýmanlegt þeirri hugsun að halda vinfengi danskra stjórnmálamanna og fjármálamanna og áhuga hjá þeim fyrir því að veita þessu landi stuðning í verklegri framfaraviðleitni sinni.“ Hannes vildi, að Íslendingar væru vinir annarra þjóða, ekki síst viðskiptavinir þeirra, en hann vildi ekki, að þeir væru þegnar þessara þjóða, heldur skyldu þeir ráða eigin málum, vera fullvalda þjóð. En sú fullvalda þjóð gat ekki lifað á munnvatni og fjallagrösum, heldur þurfti hún erlent fjármagn til að nýta kosti lands og sjávar. Haga varð því málum hyggilega, laða útlendinga að í stað þess að fæla þá frá.

Þessa hugsun um afstöðu Íslendinga til annarra þjóða má rekja allt til Snorra Sturlusonar, en hann samdi ræðu Einars Þveræings, sem átti að hafa verið flutt á Alþingi árið 1024, þá er Þórarinn Nefjólfsson bar Íslendingum boð Ólafs digra um, að þeir gerðust honum handgengnir. Snorri lætur Einar segja, að víst sé þessi konungur góður, en hitt sé ljóst, að konungar séu misjafnir, sumir góðir og aðrir ekki, og sé því Íslendingum best að hafa engan konung. Íslendingar skuli hins vegar vera vinir Ólafs konungs og gefa honum gjafir. Í Heimskringlu Snorra er eitt meginstefið, að öðru hverju komist til valda konungar, sem heyi stríð og leggi á þunga skatt landslýð til óþurftar. Snorri ólst upp í Odda, og þar hefur hann auðvitað lesið kaflann í Íslendingabók Ara fróða um ræðu Þorgeirs Ljósvetningagoða, en í upphafi hennar minnir goðinn á, að konungar í Danmörku og Noregi hafi löngum háð stríð sín í milli, en landsmenn þá iðulega stillt til friðar gegn vilja þeirra.

Á nítjándu öld hóf Jón Sigurðsson merki Snorra Sturlusonar á loft og hélt fram sömu stefnu: að Íslendingar skyldu vera vinir annarra þjóða, en ekki þegnar. Fyrir rás viðburða var Íslandi þá stjórnað frá Kaupmannahöfn. Bar Jón í Hugvekju til Íslendinga árið 1848 fram þrjár röksemdir fyrir fullu sjálfsforræði: að það hefði gengið aftur til þjóðarinnar, eftir að Danakonungur afsalaði sér einveldi, að Íslendingar væru sérstök þjóð með eigin tungu, sögu og bókmenntir, sem ætti eðli málsins samkvæmt að hafa eigið ríki, og að hagkvæmast væri, að þeir stjórnuðu eigin málum, því að þeir þekktu betur til þeirra en útlendingar. Jafnframt gerði Jón Dönum reikning fyrir kúgun þeirra og arðrán öldum saman. Auðvitað hefur hann ekki búist við, að Danir viðurkenndu þá kröfu, en hann vildi í samningum við þá jafna metin, ekki ganga til þeirra með betlistaf í hendi.

Stolt er ekki dramb

Þeir Jón Sigurðsson og Hannes Hafstein áttu það sameiginlegt að vera vinir Dana, en ekki Danasleikjur, og sýna tvö atvik það best. Upp úr 1870 tók dönsku stjórninni að leiðast þófið við Íslendinga, og setti hún án samráðs við þá Stöðulögin árið 1871, en færði þeim síðan frjálslynda stjórnarskrá á þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1874. Var að henni mikil réttarbót. Kristján IX. Danakonungur bauð Jóni Sigurðssyni í höll sína skömmu eftir setningu stjórnarskrárinnar. Hann ávarpaði Jón og benti á, að nú hefði hann skrifað undir nýja stjórnarskrá. Í orðunum lá, að Jón ætti að vera ánægður. „Þetta er góð byrjun, yðar hátign,“ svaraði Jón kurteislega. Bjóst konungur áreiðanlega ekki við þessu svari.

Hitt atvikið gerðist tæpum fjórum áratugum síðar. Hannes Hafstein var orðinn ráðherra Íslands í annað sinn og sótti ríkisráðsfund í Kaupmannahöfn haustið 1913. Árið áður hafði Kristján X. orðið konungur, en hann var ekki eins hlynntur Íslendingum og faðir hans Friðrik VIII., sem var góður vinur Hannesar. Íslandsráðherra var látinn vita fyrir fundinn, að nú skyldu ráðherrar ekki lengur koma fram í einkennisbúningi. Hannes mætti því í morgunfatnaði (morning dress, tegund af kjóli og hvítu) eins og dönsku ráðherrarnir. Í upphafi fundar spurði konungur Hannes hranalega, hvers vegna hann væri ekki í einkennisbúningi. Hannes svaraði því til, að sér hefði verið sagt að mæta í morgunfatnaði. Konungur kvað það ekki eiga við um Íslandsráðherra. Kvað hann Íslendinga ókurteisa, þrjóska og agalausa. Þegar konungur settist, sneri Hannes sér að honum og sagðist harma orð hans, ekki sjálfs sín vegna, heldur Íslendinga. Hann gæti því ekki setið þennan fund. Gekk hann út.

Þá reis upp Edvard Brandes fjármálaráðherra. Kvaðst hann hafa kynnt Hannesi hinar nýju reglur um klæðaburð. Bæði konungur Hannes ekki afsökunar, yrði hann sjálfur að víkja af fundi. Carl Zahle forsætisráðherra tók undir með Brandes og skoraði á konung að slíta annaðhvort fundi eða biðja Hannes afsökunar. Konungur sá sitt óvænna og lét senda eftir Hannesi, sem var að ganga út úr höllinni. Þegar Hannes kom inn aftur, stóð konungur upp og bað hann afsökunar. Hannes þakkaði konungi ljúfmannlega fyrir að eyða misskilningi og kvaðst sjálfur biðjast afsökunar, hefði hann í einhverju móðgað hans hátign.

Við þessi tvö tækifæri fóru þeir Jón Sigurðsson og Hannes að dæmi Staðarhóls-Páls: Þeir lutu hátigninni, en stóðu á réttinum. Þeir voru stoltir fyrir hönd þjóðar sinnar, en ekki drambsamir.

Raunar má hafa kunnan viðburð úr ævi Hannesar Hafstein til marks um, að Íslendingar ættu frekar að treysta á sjálfa sig en Dani. Hannes var sýslumaður á Ísafirði í október 1899, þegar honum barst fregn um, að breskur togari væri að veiðum á Dýrafirði langt innan landhelginnar íslensku. Hann brá við skjótt, kvaddi menn með sér og sigldi á bát út að togaranum. Skipverjar slengdu hins vegar þungum togvír og vörpu ofan á bátinn og sökktu honum. „Hannes hélt með herkjum lífi vegna frábærrar karlmennsku,“ sagði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í ræðu á aldarafmæli Hannesar. Seinna náðist þó skipstjóri togarans, illmenni að nafni Nilsson, og hlaut dóm, en honum var ekki framfylgt. Landhelgisgæsla danskra herskipa á Íslandsmiðum þótti raunar ekki röggsamleg, og varð fræg dagbókarfærsla eins þeirra, þegar það hélt eitt sinn kyrru fyrir í Reykjavík í lok nítjándu aldar: „Stille i Havnen, Storm udenfor.“ Logn í höfn, stormur á sjó. Danir gerðu samning við Breta árið 1901 um þriggja mílna landhelgi Íslands. Miðaðist hann við viðskiptahagsmuni Dana í Bretland, en var óhagstæður Íslendingum. Samningurinn gilti til 1951, og þá fyrst gátu Íslendingar hafist handa við útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Raunar lagði Jón Þorláksson til, að nota skyldi afmælisfund Alþingis á Þingvöllum árið 1930 til að samþykkja þingsályktunartillögu um fyrirhugaða útfærslu landhelginnar, en aðrir vildu ekki styggja grannþjóðirnar, svo að það varð ekki úr.

Framfarir í krafti frelsis

Í innanlandsmálum fylgdi Hannes Hafstein þeirri frjálslyndu stefnu, sem hann hafði kynnst á námsárum sínum í Kaupmannahöfn. Voru fyrri ráðherraár hans frá 1904 til 1909 eitt mesta framfaraskeið Íslandssögunnar, eins og alkunna er. Þjóðin braust úr fátækt í bjargálnir, fólk flykktist úr kotunum í þéttbýlið, innlendir kaupmenn leystu erlenda af hólmi, íslenskir vélbátar og togarar drógu björg í bú, nýtt fjármagn skapaðist. Ólíkt því, sem gerðist í mörgum öðrum Evrópulöndum á þeim árum, dró úr fólksflutningum vestur um haf. Þetta var öld hinnar frjálsu samkeppni, en henni mátti lýsa með fleygum orðum Hannesar árið 1882:

 
Ég elska þig, stormur, sem geisar um grund
og gleðiþyt vekur í blaðsterkum lund,
en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
og bjarkirnar treystir, um leið og þú þýtur.

 

Frjáls samkeppni hefur þann mikla kost, að menn verða að hætta mistökum í stað þess að halda þeim áfram með almannafé. Hún umbunar fyrir hagkvæmar ákvarðanir og refsar fyrir óhagkvæmar: hún treystir bjarkirnar, en brýtur gráfeysknu kvistina.  

Nafnið á fyrsta eiginlega íslenska stjórnmálafélaginu, heimastjórnarfélaginu Fram í Reykjavík, sem stofnað var í septemberbyrjun 1905, var áreiðanlega engin tilviljun. Það minnir á brýningu Hannesar til Íslendinga, sem ort var 1885:

Þótt þjaki böl með þungum hramm
þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram.

 

Í stefnuskrá félagsins sagði, að það fylgdi „frjálslyndri stefnu“. En þótt frjálst framtak einstaklinganna skilaði miklu á heimastjórnartímabilinu, ekki síst með Íslandsbanka og Landsbankann að bakhjörlum, gerðist líka ýmislegt að frumkvæði hins nýja íslenska ráðherra: einangrun landsins var rofin með sæsímanum; sett voru ný fræðslulög; ótal vegir voru lagðir og brýr smíðaðar; reist voru myndarleg hús yfir Landsbókasafnið og Kleppsspítala; undirbúin var stofnun háskóla; læknisþjónusta var stórbætt; metrakerfi var tekið upp; og margt fleira mætti telja.

Tvö baráttumál Hannesar

Eins og við var að búast af frjálslyndum stjórnmálamanni, var Hannes Hafstein eindreginn andstæðingur áfengisbannsins, sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1908, samhliða þingkosningum. Hann vissi sem var, að áfengið hefur aldrei gert neinum manni mein að fyrra bragði. Hannes sagði í umræðum um málið á þingi: „Það er eitt óbrigðult einkenni á öllum ofstækishreyfingum, að þeim fylgir svo mikil hjartveiki og hræðsla, að fjöldi manna, sem í hjarta sínu hefir óbeit á þeim, þorir ekki annað en að fylgjast með og tjá sig samþykka.“ Rættust öll varnaðarorð Hannesar vegna bannsins, sem var afnumið í tveimur áföngum, árið 1922, þegar innflutningur á léttum vínum var leyfður að kröfu Spánverja, sem keyptu fisk af Íslendingum og vildu geta selt þeim vín á móti, og árið 1935 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu, samhliða þingkosningum.

Hannes Hafstein var einnig ötull stuðningsmaður jafnréttis kynjanna. Hann var orðinn óbreyttur þingmaður, þegar hann bar á Alþingi árið 1911 fram frumvarp um jafnan rétt kvenna og karla til menntunar, námsstyrkja og embætta, sem var þá samþykkt. Voru Íslendingar ein fyrsta þjóðin til að tryggja þennan mikilvæga rétt. Hann skipti auðvitað hæfileikakonur miklu meira máli en sá réttur, sem konur fengu árið 1915 til að kjósa þingmenn á fjögurra ára fresti. Nokkrir gamlir andstæðingar Hannesar, þar á meðal Björn Jónsson, greiddu þó atkvæði gegn frumvarpinu. Um þetta segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur í ævisögu Hannesar: „Þar kristallast að vissu leyti munurinn á Hannesi Hafstein og þeim. Hann hefur tilhneigingu til að leggja meiri áherslu á einstaklingsréttindi en þjóðréttindi og er þannig trúr æskuhugsjónum sínum.“ Hannes hafði raunar líka látið það verða eitt sitt fyrsta verk sem ráðherra 1904 að opna Lærða skólann í Reykjavík fyrir konum.

Það fór auðvitað ekki hjá því, að Hannes Hafstein eignaðist marga andstæðinga og öfundarmenn, og voru þar fremstir í fylkingu Björn Jónsson og Skúli Thoroddsen, en hvorugur þeirra hafði fulla stjórn á skapsmunum sínum, þótt eflaust hefðu báðir viljað vel. Sárnaði Hannesi, þegar ofsi þeirra var sem mestur, en hann brást ósjaldan við með glettni. Á hinum stutta og ófarsæla ráðherraferli sínum 1909–1911 gekk Björn keikur um með þríhyrndan hatt, svokallaðan Napóleonshatt. Hannes hnoðaði eitt sinn saman brjóstmynd af Birni úr möndludeigi (marsípan) og setti á hana lítinn Napóleonshatt. Síðan orti Hannes gamanvísu til Napóleons fyrir hönd Björns:

Munurinn raunar enginn er
annar en sá á þér og mér,
að marskálkarnir þjóna þér,
en þjóna tómir skálkar mér.


Sem kunnugt er sæmdi Napóleon 26 herforingja sína marskálkstitli.

Vonir þjóðarinnar og stolt

Í ritgerð um Hannes Hafstein velti Davíð Oddsson forsætisráðherra því fyrir sér, hvort miklu hefði breytt, hefði einhver annar maður orðið fyrsti ráðherra Íslands. Sú spurning á fullan rétt á sér. Einn helsti keppinautur Hannesar um völd, Valtýr Guðmundsson, var til dæmis einbeittur framfaramaður og frelsissinni og hefur verið vanmetinn. En eins og Davíð bendir á, kunni enginn maður betur en Hannes að glæða vonir Íslendinga, ekki síður með verkum sínum en andríkum kvæðum. Ég myndi bæta því við, að Hannes kunni líka að vekja stolt þjóðarinnar án þess að breyta því í dramb. Þegar hann naut sín best á fyrstu stjórnarárum sínum, var hann fullkominn jafnoki erlendra höfðingja. Þjóð, sem átti slíkan forsvarsmann, hlaut að verða hlutgeng á alþjóðavettvangi.

(Grein í Morgunblaðinu 13. desember 2022.)


Greinin sem hvarf

Þegar ég hóf rannsókn mína á landsdómsmálinu, hafði ég óljósar spurnir af því, að einn dómarinn í landsdómi, Eiríkur Tómasson, hefði skrifað um bankahrunið á netinu. Hann hafði birt grein í Fréttablaðinu 14. febrúar 2009 um, að endurskoða þyrfti stjórnarskrána vegna bankahrunsins haustið 2008, og þar sagði í lokin, að lengri útgáfa væri til á vef blaðsins. Þessi lengri grein fannst þar hins vegar hvergi. Ég gróf hana loks upp í viðauka við prófritgerð nemanda á Bifröst, sem útvegað hafði sér afrit af henni.

Í greininni sagði Eiríkur, að þeim, sem hefðu opinbert vald, hætti til að misnota það. Hvarvetna, þar sem of mikið vald hefði safnast saman á örfáar hendur, hefði því farið illa. „Dæmi um það er ægivald íslenskra ráðherra gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins, en sú samþjöppun valds á fáar hendur hefur, eins og bent hefur verið á að undanförnu, átt sinn þátt í því að valda okkur Íslendingum meiri búsifjum en við, sem fædd erum um miðja sí›ustu öld, höfum áður kynnst.“ Ég sneri mér til vefstjóra visis.is sem kunni enga skýringu á því, að greinin hefði horfið, en gat sett hana inn aftur.

Í þessari grein reifaði Eiríkur beinlínis þá kenningu, að ein orsök bankahrunsins hefði verið „ægivald“ ráðherra gagnvart öðrum handhöfum ríkisvaldsins, sem þeir hefðu misnotað. Hefði verið vitað um þessa grein, þegar Eiríkur settist í landsdóm í ársbyrjun 2012, þá hefði hann tvímælalaust verið talinn vanhæfur til að dæma í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Hann hafði þegar látið í ljós þá skoðun, að Geir hefði átt þátt í bankahruninu með því að misnota „ægivald“ sitt.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 10. desember 2022.)


Barcelona, nóvember 2022

Cover.24Thinkers.Part1Árið 2022 hef ég sótt fundi í São Paulo, Reykholti, Ljubljana, Zagreb, Sarajevo, Belgrad, Kaupmannahöfn, Osló (tvisvar), Stokkhólmi, Las Vegas (tvisvar), Tbílísi, Tallinn, Split, Wroclaw, Búkarest, Vínarborg, Prag og Barcelona. Erindið var oftast að kynna bók mína á ensku um tuttugu og fjóra frjálslynda íhaldsmenn, allt frá frumkvöðlunum Snorra Sturlusyni og heilögum Tómasi af Akvínas til höfuðspekinganna Adams Smiths og Friedrichs von Hayeks. Hún kom út í tveimur bindum í Brüssel í árslok 2020.

Síðasta málstofa ársins var í Barcelona 25.–26. nóvember, og hélt hana ELF, European Liberal Forum, sem starfar á vegum Evrópusamtaka frjálslyndra flokka. Tilefnið var, að nú er mjög sótt að frelsi til orðs og æðis, jafnt innan frá og utan. Háværir hópar vilja ákveða, hvað megi segja opinberlega um grímuskyldu, minnihlutahópa, hlýnun jarðar og margt fleira. Lýðskrumarar til hægri og vinstri leita að lægsta samnefnaranum meðal kjósenda. Valdaklíkan í Kremlarkastala reynir að leggja undir sig lönd.

Hvernig skal bregðast við? Sjálfur lét ég þá skoðun í ljós, að fylgismenn frelsisins yrðu að skipta með sér verkum. Sumir ættu að heyja stjórnmálabaráttu af hyggindum, skírskota til þeirra kjósendahópa, sem teldu sér hag í auknu atvinnufrelsi, þar á meðal lægri sköttum. Aðrir ættu að reka hugveitur, sem legðu fram hugvitsamlegar, en raunhæfar tillögur um, hvernig leysa mætti verkefni með verðlagningu frekar en skattlagningu, viðskiptum í stað valdboðs. Enn aðrir ættu að sinna fræðilegum rannsóknum, efla að rökum frjálslynda íhaldsstefnu, sem hvílir á fjórum stoðum, einkaeignarrétti, viðskiptafrelsi, valddreifingu og virðingu fyrir gamalgrónum gildum. Þótt vissulega væri sótt að frelsinu, hefði ástandið oft verið verra. Bölsýnin væri framtíðarspá, sem rættist af sjálfri sér. Ef menn máluðu skrattann á vegginn, þá ætti hann til að birtast þar. Hitt væri annað mál, að mæta yrði óvinum frelsisins af fullri festu.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 3. desember 2022.)


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband