10.3.2010 | 12:28
Breytingar á stjórnskipun?
Fugl viskunnar hefur sig á loft, þegar rökkva tekur, sagði Hegel. Hann átti við það, að við skiljum oftast ekki breytingar, fyrr en þær eru þegar orðnar. Við skipuleggjum ekki framtíðina, heldur reynum að skilja fortíðina og vonandi að einhverju leyti samtíðina.
Ég sé ekki betur en tvær breytingar séu að verða á stjórnskipun Íslands, sem var í tiltölulega föstum skorðum alla tuttugustu öld. Önnur er, að forsetinn er að fá aukin völd á kostnað þingsins. Núverandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur tvisvar synjað lögum staðfestingar og þannig gengið gegn vilja þingsins. Við þetta hefur embættið breytt um svip og jafnvel um eðli. Áður var forsetinn sameiningartákn þjóðarinnar og átti að vera ofar stjórnmálum. Nú er hann orðinn virkur þátttakandi í þeim.
Er þetta gott eða vont? Ég er ekki viss um svarið, en bendi á tvennt. Í fyrsta lagi hafði þjóðin ekki tekið neina ákvörðun um að breyta forsetaembættinu. Sá, sem nú situr í embættinu nýtti sér hins vegar (með hjálp áhrifamikilla álitsgjafa), að orðalag í stjórnarskránnni um valdsvið þess var óljóst, enda var forsetinn arftaki Danakonungs, sem hafði verið valdamikill á öldum áður, en var orðinn valdalaus, þegar Íslendingar hrópuðu hann af. Í öðru lagi vilja frjálslyndir menn frekar minnka vald en flytja það til. Valdið hefur ekki minnkað, heldur hefur það flust að einhverju leyti frá þingi til forseta.
Ef til vill má segja, að aukið jafnvægi myndist hér við það, að forseti verði mótvægi við þinginu. Á hinn bóginn hefur Ísland verið tiltölulega vel heppnað þingræðisríki (og breyta núverandi hremmingar engu um það), og Íslendingar eru hreyknir af því, að þjóðþing þeirra sé hið elsta í heimi.Hin breytingin á stjórnskipun Íslands er, að líklega verður framvegis fleiri málum skotið til þjóðarinnar en áður. Er það gott eða vont? Enn er ég á báðum áttum. Þjóðaratkvæðagreiðslur hafa reynst mjög vel í Sviss, enda er þar löng hefð fyrir þeim og lýðræði rótgróið. Svissneskir kjósendur hafa stöðvað marga óráðsíuna í atkvæðagreiðslum. En hætta er á því, þar sem slík hefð er ekki, að til verði einhvers konar „Bónapartismi“, þar sem lýðskrumarar í háum embættum leggja mál fyrir þjóðina með það eitt fyrir augum að auka eigin völd. Þjóðir eru ekki óskeikular frekar en einstaklingar.
Framtíðin ein sker úr, hvað verður. Erfitt er að spá í annað en fortíðina og þá samtíð, sem er óðum að verða fortíð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Tenglar
Kvikmyndir á Netinu
- Kafli um spádómsorð austurrísku hagfræðinganna um sósíalisma
- Kafli um frjálshyggjubyltingu Chicago-drengjanna í Chile
- Minningarorð Margrétar Thatchers um Ronald Reagan
- Tímamótaræða Ronalds Reagans 1964
- Heimsendi frestað um óákveðinn tíma
- Hrakspár um loftslagsbreytingar afturkallaðar
- Blekkingin mikla um hlýnun jarðar
- Umræðuþáttur með Milton Friedman í Sjónvarpinu 1984
Erlendir:
- Liberty Fund
- Laissez Faire Books
- Property and Environment Research Center
- American Enterprise Institute
- Hoover Institution
- Netskrif Beckers og Posners
- Mont Pelerin Society
- Heritage Foundation
- Cepos
- Timbro
- Institute of Economic Affairs
- Cato Institute
Íslenskir:
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Matthías Johannessen
- Birgir Ármannsson
- Einar K. Guðfinnsson
- Heimildarmyndir ehf.
- Heimspekileg sjálfslýsing
- Seðlabankinn
- Stjórnmálafræðiskor
- MPS á Íslandi 2005
- Rannsóknamiðstöð um samfélags- og efnahagsmál
- Frjálshyggjufélagið
- Deiglan
- Andríki
- Björn Bjarnason
Tónlistarspilari
Bækur
á náttborðinu
- : Hvíta bókin (ISBN: 9789979330585)
- : Cool It (ISBN: 9780462099125)
- : Alltaf sama sagan (ISBN: 9789979221005)
- : Ævintýraeyjan (ISBN: 9789979994411)
- : The Failure of Capitalism (ISBN: 978-0-674-03514-0)
Bloggvinir
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Snorri Bergz
- Hjörtur J. Guðmundsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Gisli Freyr Valdórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur H. Bragason
- Kjartan Vídó
- Kári S. Lárusson
- Gunnar Dofri Ólafsson
- Vera Knútsdóttir
- Ívar Páll Jónsson
- Þorleifur Ágústsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sigurður Sigurðsson
- Óttar Felix Hauksson
- Sævar Guðmundsson
- Sigurður Karl Lúðvíksson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Kristín María
- Vilhjálmur Andri Kjartansson
- Andri Heiðar Kristinsson
- Eyþór Arnalds
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Karl Gauti Hjaltason
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Snorri Snorrason
- Goggi
- Stjórn Eyverja
- Fannar frá Rifi
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Davíð Örn Jónsson
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Örvar Már Marteinsson
- Ívar Pálsson
- Tryggvi H.
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vestfirðir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Heiða Þórðar
- Reynir Jóhannesson
- Ingólfur H Þorleifsson
- E.Ólafsson
- Hallgrímur Óskarsson
- gudni.is
- Ásgeir R. Helgason
- Bleika Eldingin
- Ásta Möller
- Brynjar Svansson
- Geir Ágústsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU & AUGLÝSINGAR
- Pálmi Gunnarsson
- Kallaðu mig Komment
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Hommalega Kvennagullið
- Oddgeir Einarsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Per Krogshøj
- Haukur Már Helgason
- Gísli Hjálmar
- Páll Kristbjörnsson
- Einar Ben Þorsteinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Nói Blomsterberg
- Gammurinn
- Hans Haraldsson
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir
- BLOGGER
- Bergur Thorberg
- Guðrún Stella Gissurardóttir
- Guðmundur Bergkvist
- Kokkurinn Ógurlegi
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Sverrir Stormsker
- Hvíti Riddarinn
- Hlekkur
- Ólafur Örn Nielsen
- Hróðmar Vésteinn
- Hallgrimur Viðar Arnarson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Vilborg G Hansen
- Sigurður Þór Guðjónsson
- K Zeta
- Hermann Ingi Hermannsson
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hlynur Sigurðsson
- Kristín Hrefna
- Vefritid
- Kristjón Kormákur Guðjónsson
- Ásgeir H. Reykfjörð
- Adda bloggar
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Geir Kárason
- Auðunn Hilmarsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Árni Árnason
- Baldur Hermannsson
- Björn Bjarnason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Gomez
- Elís Már Kjartansson
- Elvar Atli Konráðsson
- Frjálshyggjufélagið
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Tryggvason
- Guðmundur F Jónsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Júlíusson
- Gulli litli
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Kristinn Þórðarson
- Gunnar Pálsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gunnar Waage
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Heimssýn
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Hjalti Sigurðarson
- Hulda Haraldsdóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Magnússon
- Jón Valur Jensson
- jósep sigurðsson
- Júlíus Björnsson
- Karen Elísabet Halldórsdóttir
- Ketilás
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristleifur Guðmundsson
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús B Jóhannesson
- Magnús Orri Einarsson
- Ólafur Björnsson
- Óskar Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Haraldur Sigurðsson
- Ragnar Bjartur Guðmundsson
- Rýnir
- Sigurbrandur Jakobsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sjálfstæðissinnar
- Styrmir Hafliðason
- Sumarliði Einar Daðason
- Svavar Guðmundsson
- Sölvi Breiðfjörð Harðarson
- Tryggvi Hjaltason
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm
- Þórarinn Sigurðsson
- Þórður Már Jónsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þröstur Heiðar Guðmundsson
- Ævar Austfjörð
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.9.): 0
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 176
- Frá upphafi: 385523
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 127
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


